Mottumarsdagur og Mottumarshlaup framundan

Mottumars stendur nú sem hæst og fram undan eru helstu viðburðir mánaðarins þegar vakin er athygli á heilsu karla og safnað fyrir starfsemi Krabbameinsfélagsins. Skeggkeppni Mottumars er þegar komin á fullt og næst á dagskrá er Mottumarsdagurinn sem haldinn verður fimmtudaginn 19. mars. Sama dag fer einnig fram Mottumarshlaupið sem haldið verður í þriðja sinn.

Fyrirtæki taka þátt í Mottumars

Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið þátt í átaki Mottumars með því að „sokka upp“ starfsfólk sitt og styðja þannig við starfsemi Krabbameinsfélagsins. Sum fyrirtæki hafa jafnframt deilt myndböndum og innslögum á samfélagsmiðlum þar sem þau hvetja önnur fyrirtæki til að taka þátt í átaki mánaðarins.

Meðal fyrirtækja sem hafa tekið þátt í slíkum verkefnum eru Hugsmiðjan, Elding hvalaskoðun og Eskja.

Mottumarshlaupið ræst frá Fagralundi

Mottumarshlaupið hefur á skömmum tíma orðið eitt fjölmennasta 5 kílómetra götuhlaup landsins. Í fyrra tóku ríflega 600 manns þátt í hlaupinu.

Í ár verður hlaupið ræst frá Fagralundi í Kópavogi þar sem þátttakendur hlaupa fimm kílómetra hring á þeim hraða sem hver og einn kýs. Hlaupið er vottað af Frjálsíþróttasambandi Íslands.

Skráning stendur yfir

Skráning í Mottumarshlaupið stendur yfir og geta áhugasamir skráð sig á heimasíðu átaksins með því að smella hér en þar er einnig að finna nánari upplýsingar um viðburðinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila