Myndband: Bankar misnota peningaprentun til þess að ölast meiri völd

Richard Werner, hagfræðingur og prófessor í bankafræðum, sakar ráðandi öfl í fjármálakerfinu um stórfellt svindl þar sem almenningi sé haldið í myrkrinu um peningaprentun bankanna. Í viðtali í The Peter McCormack Show lýsir hann kerfi þar sem villandi hagfræðikenningar feli raunverulegt vald bankanna og stjórn á lánsfé sé nýtt til að þjappa saman eignarhaldi, veikja smærri fyrirtæki og færa efnahagsleg völd á færri hendur.

Svindlið sem hann lýsir felst í því að þeir sem þekkja starfsemi peningakerfisins geti nýtt það sér til framdráttar á meðan almenningur fái ranga mynd af því hvernig bankar starfa. Hann sakar seðlabankamenn um að skapa vísvitandi aðstæður fyrir efnahagslægðir og bankakreppur sem greiði leið fyrir breytingar á eignarhaldi og frekari samþjöppun.

Lausnin sem Werner leggur fram er að fjölga staðbundnum bönkum og beina peningaprentun þeirra að fjárfestingu í atvinnulífinu. Hann lýsir möguleikanum á 10% árlegum hagvexti með slíku kerfi og hafnar því að stöðnun, aðhald og síendurteknar kreppur séu óhjákvæmilegt hlutskipti almennings.

Villandi kenningar fela vald bankanna

Werner gagnrýnir þá útbreiddu lýsingu að bankar safni sparnaði viðskiptavina og láni sömu peninga áfram. Sú mynd feli mikilvægasta hlutverk þeirra: Bankarnir geti sjálfir prentað nýja peninga með lánveitingum og ákveðið hverjir fái að ráðstafa þeim.

Í frásögn hans hefur þessi hæfileiki bankanna verið hulinn almenningi um aldir. Þeir sem hafi þekkt kerfið hafi getað byggt upp mikinn auð, lánað stjórnvöldum og konungum og síðan nýtt skuldsetninguna til að krefjast réttinda, forréttinda og áhrifa.

Gagnrýnin nær einnig til aðferðanna sem notaðar eru í hagfræði. Hann lýsir því hvernig hægt sé að byrja á þeirri niðurstöðu sem menn vilja fá, velja líkan sem skili henni og stilla síðan forsendunum upp þannig að niðurstaðan virðist spretta eðlilega úr fræðilegri greiningu.

Werner lýsir þessu sem fræðilegu svindli. Rökrétt líkan sé ekki sjálfkrafa rétt lýsing á veruleikanum. Kenningarnar þurfi að standast samanburð við gögn, raunverulega bankastarfsemi og efnahagssöguna.

Bankarnir prenta peninga með rafrænum færslum

Peningaprentunin sem Werner fjallar um fer fram rafrænt í bókhaldi bankanna. Þegar banki veitir lán myndast ný innistæða á reikningi lántakandans sem hann getur notað til greiðslna.

Lánið er skráð sem eign bankans en innistæðan sem skuldbinding hans gagnvart viðskiptavininum. Þannig verða til nýir peningar með bókhaldsfærslum. Bankinn hefur um leið ákveðið hver fær að nota þá og til hvaða verkefnis.

Werner vísar til rannsóknar sinnar frá 2014 þar sem fylgst var með innri færslum banka við lánveitingu. Rannsóknin sýndi að ný innistæða varð til þegar lánið var veitt. Fjárhæðin var ekki tekin af öðrum reikningi og færð til lántakandans.

Valdið til peningaprentunar hefur því bein áhrif á þróun atvinnulífsins. Lánveitingar ráða því hvaða fyrirtæki geta fjárfest, ráðið starfsfólk og aukið framleiðslu. Þegar almenningur skilji ekki þetta hlutverk bankanna verði jafnframt erfiðara að átta sig á því hver stjórni raunverulega möguleikum hagkerfisins til að vaxa.

Ráðstöfun lánsfjár ræður hagvexti og bólumyndun

Werner leggur áherslu á að tilgangur lánveitinganna skipti sköpum. Sömu aðferðir við peningaprentun geti haft mjög ólíkar afleiðingar eftir því hvert fjármagnið fer.

Þegar bankar láni til fjárfestingar sem eykur framleiðslu, svo sem vélakaupa, nýrrar tækni eða uppbyggingar fyrirtækja, aukist geta hagkerfisins til að framleiða vörur og þjónustu. Hann lýsir þessu sem grundvelli mikils hagvaxtar án þess að peningaprentunin leiði sjálfkrafa til verðbólgu.

Lán til neyslu auki hins vegar kaupgetu án þess að framleiðslan aukist endilega á móti. Þá geti þrýstingurinn komið fram í neysluverði. Þegar nýtt lánsfé fari í kaup á fyrirliggjandi fasteignum og fjármálaeignum þrýsti það upp eignaverði og geti byggt upp bólur sem endi í bankakreppum.

Í greiningu hans er því lykilatriði að skoða bæði magn lánsfjár og ráðstöfun þess. Hann gagnrýnir að umræðan um peningamál snúist að svo miklu leyti um stýrivexti á meðan ákvarðanir um lánveitingar fái minni athygli.

Í rannsóknum sínum hafi hann fundið að vextir fylgi hagvexti og hækki þegar efnahagsumsvif aukast. Hann vill þess vegna beina sjónum að því hvernig peningaprentun bankanna er stýrt og hvaða starfsemi fær fjármögnun.

Stórbankarnir þrengja að smærri fyrirtækjum

Samþjöppun bankakerfisins hefur einnig áhrif á hverjir fá aðgang að nýju lánsfé. Werner lýsir einfaldri reglu úr rannsóknum sínum á bandarískum bönkum: Stórir bankar sækist eftir stórum viðskiptum við stóra viðskiptavini en smærri bankar sinni frekar smærri fyrirtækjum.

Þegar bankarnir verði mjög stórir leiti þeir að lánaviðskiptum sem henti stærð þeirra. Fjármögnun stórra fjárfestingarsjóða verði þá meira aðlaðandi en lánveitingar til smáfyrirtækja.

Hann notar Bretland sem dæmi og lýsir bankakerfi þar sem fimm stórir bankar ráði yfir meira en 80% innlána. Smærri fyrirtæki geti átt erfitt með að fá fjármagn til nýrra tækja og tækni, þótt fjárfestingin gæti bætt reksturinn.

Werner ber þetta saman við staðbundna banka í Þýskalandi. Þar geti fyrirtæki leitað til banka sem þekki stjórnendurna, reksturinn og markaðsaðstæður á svæðinu. Sú þekking auðveldi mat á fjárfestingaráformum og geti flýtt fyrir lánveitingum.

Munurinn birtist síðan í framleiðni. Fyrirtæki sem fái fjármagn geti tekið nýja tækni í notkun. Fyrirtæki sem fái það ekki verði að fresta fjárfestingu eða sætta sig við lakari lausnir. Þar sem smá og meðalstór fyrirtæki séu stórir atvinnuveitendur hafi þetta áhrif á lífskjör víða í samfélaginu.

Bankakreppur færa eignir og völd milli aðila

Werner vill að seðlabankamenn séu metnir út frá aðgerðum sínum og afleiðingum þeirra. Hann vísar til hugmyndar hagfræðingsins Pauls Samuelsons um að raunveruleg forgangsröðun birtist í því sem fólk gerir.

Með þeirri nálgun skoðar hann hvers vegna seðlabankar taki ákvarðanir sem dragi úr hagvexti eða þrengi að atvinnulífi. Hann sakar þá um að nota efnahagslægðir og kreppur til að knýja fram breytingar sem ekki væri hægt að koma jafnauðveldlega á við góðar aðstæður.

Hann vísar sérstaklega til Japans og rannsókna sinna sem birtast í bókinni Princes of the Yen. Í lýsingu hans hafi stefna seðlabankans verið notuð til að þrýsta á breytingar á uppbyggingu hagkerfisins og eignarhaldi.

Sambærilega túlkun leggur hann á Asíukreppuna. Hagkerfi með sterku innlendu eignarhaldi hafi eftir kreppuna opnast fyrir erlendum fjárfestum. Fyrri eigendur hafi misst stöðu sína og aðrir fengið tækifæri til að taka yfir banka og fyrirtæki.

Þar kemur svindlið í frásögn hans aftur skýrt fram: Almenningi sé gert að bera kostnað stöðnunar og kreppu á meðan þeir sem stjórni aðgangi að peningum geti nýtt afleiðingarnar til að styrkja eigin stöðu.

Staðbundnir bankar dreifa peningaprentun og ákvörðunarvaldi

Werner leggur til bankakerfi með mörgum smærri bönkum sem láni til atvinnurekstrar í sínu nærumhverfi. Ákvarðanir um fjármögnun byggist þá á þekkingu á staðbundnum fyrirtækjum og verkefnum.

Þannig dreifist valdið yfir peningaprentuninni. Fleiri aðilar taki ákvarðanir um lánveitingar og fleiri fyrirtæki fái möguleika á að fjárfesta og vaxa. Fjölskyldufyrirtæki og staðbundið atvinnulíf verði síður háð forgangsröðun örfárra stórra fjármálastofnana.

Hann vísar meðal annars til uppbyggingar bankakerfisins í Kína eftir að Deng Xiaoping komst til valda. Fjölgun banka og dreifing lánveitinga hafi þar verið lykilþáttur í fjármögnun verkefna og innleiðingu nýrrar tækni.

Í þeirri sýn sem hann setur fram geti sambærileg nálgun skilað Bretlandi og öðrum ríkjum hagvexti í kringum 10% á ári. Forsendan sé að nýir peningar fari að verulegu leyti til fjárfestingar sem eykur framleiðslu og að ákvörðunarvaldið verði mun dreifðara.

Tilraun til bankastofnunar mætti mótstöðu

Werner lýsir því að slík uppbygging mæti mótstöðu vegna þess að hún færi vald frá stærstu fjármálastofnununum til staðbundinna aðila. Hann gagnrýnir að auðveldara geti reynst að fá leyfi fyrir banka sem þjónar mjög efnuðum viðskiptavinum en banka sem eigi að fjármagna smáfyrirtæki í ákveðnu byggðarlagi.

Hann nefnir eigin vinnu við undirbúning Hampshire Community Bank. Verkefnið hafi notið stuðnings stjórnmálamanna en farið í gegnum langt undirbúningsferli hjá Englandsbanka þar sem kröfurnar hafi ítrekað breyst. Þegar komið var að því að leggja leyfisumsóknina fram dró stærsti fjárfestir verkefnisins sig út.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila