Nægar sannanir um glæpastörf Biden klíkunnar

Glæpaklíka The Bidens meðan allt lék í lyndi: Frá vinstri Hunter Biden sonur núverandi forseta Joe Biden lengst til hægri. Í miðjunni er bróðir Joe Biden, James Biden.

Eins og Útvarp Saga hefur greint frá, þá hrannast sönnunargögnin upp um glæpastörf og fjármálasvindl Biden klíkunnar. Sér í lagi hafa gögn komið fram varðandi svindl og valdníðslu gagnvart úkraínska orkufyrirtækinu Burisma og einnig varðandi beinar greiðslur frá kommúnistaflokki Kína. Sýnt er, að núverandi forseti Joe Biden stal ríkisleyndarmálum og skjölum í tíð sinni sem varaforseti Bandaríkjanna. Meginmiðlar í eigu glóbalista þegja um þessar sannanir gegn Biden. Það er eins og þeir haldi að fólk sjái ekki gegnum lygavefinn í kringum The Bidens.

Eins og Útvarp Saga greindi frá, þá ljóstraði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Grassley upp um sannanir á 17 hljóðböndum um tíu milljón dollara mútugreiðslur Burisma til Joe og Hunter Biden. Bankakvittanir staðfesta einnig mútugreiðslurnar. FBI hafði áður neitað að segja frá þessum gögnum og nefnd Bandaríkjaþings ritskoðaði gögnin og klippti út upplýsingarnar um hljóðböndin áður en gögnin voru send til þingmanna. Hér er eflaust um eitt af stærstu hneykslismálum í sögu Bandaríkjanna að ræða. En hlutdrægir fjölmiðlar í eigu glóbalista með keyptum áróðursmönnum þegja um málið.

Aðalbókari Burisma með kvittanir

Á laugardag sagði Rudy Giuliani, fv. borgarstjóri New York, við Ritu Cosby á Newsmax (sjá myndband að neðan), að fyrrverandi aðalbókari Burisma væri reiðubúinn að bera vitni um Biden glæpina. Aðalbókarinn var með kvittanir yfir bankaviðskipti Biden. Rudy Giuliani sagði:

„Þetta er ótrúlegt. Ég kom með vitni sem sérhver rannsakandi myndi vera himinlifandi að fá. Vitni sem er kona og aðalbókari hjá þessu spillta fyrirtæki, Burisma. Hún var eiginkona fyrrverandi eiganda sem lést við grunsamlegar aðstæður. Hún var tilbúin að gefa upp alla aflandsbankareikninga, þar með talið reikninga Bidens. Hún hafði umsjón með sendingum á miklu meira af peningum til Biden og annarra spilltra stjórnmálamanna af hálfu Burisma.“

Fjögur vitni til viðbótar

Rudy Giuliani sagði einnig í stríðsherbergi Steve Bannons að fjögur vitni til viðbótar væru tilbúin að koma fram og bera vitni gegn Biden:

„Aðalbókari Burisma var eiginkona Mycola Zlochevsky sem átti Burisma og var helsti glæpamaðurinn sem borgaði Biden. Og hún vildi bera vitni og þá einnig njóta vitnaverndar. Fjórir samstarfsmenn eru einnig tilbúnir að bera vitni og styðja hana. Hún segir, að hún hafi haft umsjón með öllum ólöglegum bankareikningum á átta ára tímabili. Allur peningaþvottur fór í gegnum hana. Við vorum ekki örugg, hvort hún væri að segja satt en við höfðum eina færslu sem ég hafði fengið áður. Hún sýndi $14 milljóna peningaþvott, þar sem hluti peninganna fóru til Joe Biden með vísbendingu um að Joe hafi fengið $900.000 af peningunum og fjölskylda hans samtals um $3 milljónir af þeirri færslu.“

Fjölmiðlar reyna að gera lítið úr Rudy Giuliani en hann hefur oftar en ekki haft rétt fyrir sér. Fjölmiðlar glóbalistanna reyna að friða hina gjörspilltu Bandaríkjastórn með því að þegja yfir öllum sönnunum um glæpastörf Biden en birta í staðin „hneykslisfréttir“ um Donald Trump sjá dæmi hér að neðan á eftir myndbandinu með viðtalinu við Giuliani:

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila