NATO óttast vopnaskort vegna stríðsins við Íran

Herforingjar NATO-ríkjanna hafa sívaxandi áhyggjur af vopnaskorti innan bandalagsins. Rætt var um þær áhyggjur á fundi NATO í vikunni.

Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu hefur stríðið þegar kostað Bandaríkjaher meira en 29 milljarða dollara og notkun háþróaðra vopna- og loftvarnakerfa verið gríðarleg. Þar á meðal eru Patriot-loftvarnarkerfin sem teljast meðal mikilvægustu varnarkerfa NATO-ríkja.

Óttast að birgðir klárist hraðar en hægt er að framleiða

Bandamenn innan NATO hafa áhyggjur af því að ekki verði hægt að framleiða ný vopn og varahluti nógu hratt til að halda í við eyðslu Bandaríkjahers. Á fundinum í Brussel fóru herforingjar allra 32 aðildarríkja fara yfir áhrif þess að stór hluti birgða sé notaður á skömmum tíma á meðan spennan við Rússland heldur áfram að aukast. Samkvæmt háttsettum heimildarmanni innan NATO hefur bandalagið árum saman varað við því að auka þyrfti vopnaframleiðslu vegna stríðsins í Úkraínu, en átökin við Íran hafi sýnt að staðan sé enn alvarlegri en áður var talið.

„Við þurfum gríðarlegt magn af vopnum og skotfærum og getu til að auka framleiðslu mjög hratt. Við höfum einfaldlega ekki þá getu í dag,“ sagði heimildarmaðurinn.

Mikilvægt að geta brugðist við á fleiri en einum stað

NATO telur að stríðið við Íran sýni hversu mikilvægt sé að bandalagið geti brugðist við fleiri en einum stórum hernaðarátökum á sama tíma. Átökin hafa þegar haft áhrif á alþjóðlegar birgðakeðjur fyrir olíu, gas og aðrar hrávörur eftir lokanir og truflanir við Hormuz-sund.

Áhrif á Úkraínu og Evrópu

Eitt megin áhyggjuefni Evrópuríkja er að bandarísk vopnakerfi sem ætluð voru Úkraínu eða keypt af evrópskum NATO-ríkjum geti tafist eða jafnvel ekki verið afhent vegna þess hve miklar birgðir Bandaríkin nota sjálf í stríðinu. Á fundinum verður einnig farið yfir áhrif ákvörðunar Bandaríkjanna um að hætta við fyrirhugaða sendingu yfir fjögurra þúsund hermanna til Póllands. Sú ákvörðun kom bandalagsríkjum á óvart þar sem hluti hermannanna og búnaðarins var þegar á leiðinni til Evrópu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila