Nokkur tonn af efnum til kjarnavopnaframleiðslu fundust á leynilegum stað í Sýrlandi

Nokkur tonn af efnum sem tengjast kjarnorkuáætlun fyrri stjórnvalda í Sýrlandi hafa fundist á áður ótilkynntum stað í landinu. Efnið verður nú skráð og sett undir alþjóðlegt eftirlit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA. Þetta kemur fram í frétt France24.

Rafael Mariano Grossi, framkvæmdastjóri IAEA, greindi frá fundinum í heimsókn sinni til Sýrlands. Hann sagði um nokkur tonn af efni að ræða sem gæti verið misnotað. Ekki hefur verið upplýst hvar staðurinn er.

Sýrland tilkynnti sjálft um fundinn

Asaad al-Shaibani, utanríkisráðherra Sýrlands, segir sýrlensk stjórnvöld hafa sent IAEA formlega tilkynningu 17. júlí um efnið og staðinn þar sem það fannst. Staðurinn hafði ekki áður verið tilkynntur til stofnunarinnar og tengist arfleifð fyrri stjórnvalda.

Tæknilegt mat sýrlenskra stjórnvalda bendir til þess að efnið skapi ekki hættu. Það verður áfram í vörslu Sýrlands en fellur undir eftirlitskerfi IAEA.

Sýrlenskir sérfræðingar og sérfræðingar IAEA munu vinna saman að öruggri geymslu efnisins. Grossi segir að gerð verði full grein fyrir því og það sett undir alþjóðlegt eftirlit.

Leynileg aðstaða rannsökuð í Deir Ezzor

Grossi heimsótti einnig Deir Ezzor í austurhluta Sýrlands þar sem IAEA hefur lengi talið að verið hafi að byggja kjarnakljúf í leyni. Staðurinn hefur verið lokaður í 18 ár.

Ísrael viðurkenndi árið 2018 að hafa gert leynilega loftárás á staðinn 11 árum áður. Umfangsmikill uppgröftur og rannsóknir standa þar nú yfir.

Grossi segir rannsóknirnar styðja langvarandi mat IAEA um að verið hafi að byggja þar kjarnorkuver í leyni. IAEA greindi jafnframt frá því á síðasta ári að úranagnir hefðu fundist á staðnum við rannsókn árið 2024.

Ný stjórnvöld vinna með IAEA

Frá falli Bashars al-Assad síðla árs 2024 hafa ný stjórnvöld í Sýrlandi unnið með IAEA að því að upplýsa um óafgreidd mál sem tengjast kjarnorkuáætlun fyrri stjórnvalda.

Grossi segir samstarfið marka upphaf nýs kafla en að jafnframt þurfi að upplýsa að fullu hvað átti sér stað á valdatíma Assad-fjölskyldunnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila