
Júlíus Valsson skrifar:
Meirihluti á norska Stórþinginu styður tillögu Kristilega þjóðarflokksins um að fella niður kolefnisgjald á fiskiskipaflotann frá 1. janúar 2027. Miðflokkurinn, Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn standa að meirihlutanum ásamt flutningsmönnum. Sömu flokkar felldu gjaldið tímabundið niður fyrr á árinu. Endanleg afgreiðsla bíður fjárlagaumræðunnar og Audun Maråk, framkvæmdastjóri útgerðarsamtakanna Fiskebåt, vonast til að stjórnarflokkurinn, Verkamannaflokkurinn, styðji undanþáguna þar.
Gjaldið var lagt á árið 2020 til að ýta flotanum yfir í loftslagsvænna eldsneyti. Að sögn tímaritsins Fiskebåt hefur tæknin látið bíða eftir sér og stór hluti flotans á engan annan kost en dísilolíu. Gjaldið hafi því veikt samkeppnisstöðu norskra útgerða og jafnvel aukið losun, þar sem skip leggi lykkju á leið sína í erlenda höfn til að komast hjá því.
Kolefnisgjöldin hækka á íslandi
Hér á landi hefur þróunin verið á hinn veginn. Kolefnisgjald á eldsneyti hefur á áratug farið úr tæpum sex krónum á lítra í rúmar 28 krónur, að því er fram kemur í 200 mílum á mbl.is, og á að hækka aftur um áramót. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir þar að Norðmenn sýni samkeppnishæfni greinarinnar meiri skilning en íslensk stjórnvöld.
Gjaldið hafi tvöfaldast hér á tveimur árum. „Á sama tíma stefna Norðmenn að því að afnema gjaldið,“ segir hún.
Heiðrún Lind telur hærra gjald draga úr getu fyrirtækja til orkuskipta. Hún nefnir fiskimjölsverksmiðjur sem hafi fjárfest í rafvæðingu en þurfi að brenna olíu þegar raforka er skert. Þar skili hækkunin auknum rekstrarkostnaði án þess að olíunotkun minnki.
