Norræn brugghús vara við nýjum umbúðareglum ESB

Júlíus Valsson skrifar:

Samtök brugghúsa á Norðurlöndum vara við því að ný umbúða- og umbúðaúrgangsreglugerð Evrópusambandsins geti hækkað verð á drykkjarvörum og flækt pantkerfi sem þegar skila góðum árangri.

Dýrt kerfi

Í aðsendri grein í Svenska Dagbladet segja forsvarsmenn samtakanna að reglurnar taki ekki nægilegt tillit til aðstæðna á Norðurlöndum. Þar séu dósir og plastflöskur þegar endurheimtar í miklum mæli og efnið endurunnið í nýjar umbúðir. Þeir telja því hættu á að kröfur um endurfyllanlegar flöskur skapi dýrt kerfi samhliða núverandi pantkerfum, án þess að umhverfisávinningur sé tryggður.

Kemur niður á neytendum

Samkvæmt sænsku brugghúsasamtökunum felur reglugerðin í sér að 10 prósent drykkjarvara brugghúsa skuli seld í endurfyllanlegum umbúðum árið 2030 og hlutfallið hækki í 40 prósent árið 2040. Þau segja slíkt kalla á aukna flutninga, þvott, flokkun og geymslu á glerflöskum. Kostnaðurinn gæti einkum komið niður á minni framleiðendum og að lokum neytendum.

Samtökin vilja að norræn ríki fái undanþágu á grundvelli ákvæðis reglugerðarinnar sem heimilar framkvæmdastjórn ESB að taka tillit til staðbundinna umhverfis- og efnahagslegra aðstæðna.

Reglugerðin, sem nefnist PPWR, tekur almennt gildi 12. ágúst 2026. Markmið ESB er að draga úr umbúðaúrgangi, auka endurnotkun og endurvinnslu og tryggja að allar umbúðir á markaðnum verði endurvinnanlegar með hagkvæmum hætti fyrir árið 2030.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila