Nú er kallað eftir stríði við Íran …

Hallur Hallsson skrifar:

Þrír bandarískir hermenn féllu og 40 særðust í drónaárás á herstöð Turn 22; Tower 22 sem sögð er á landamærum Jórdaníu og SýrlandsÁrásin var á sunnudag, 28. janúar. Bandaríska varnarmálaráðuneytið segir að hermennirnir hafi verið í Jórdaínu vegna Aðgerða til LausnaOperation Inherent Resolve í svokalllaðri baráttu við ISIS sem Obama-stjórnin kom á laggirnar fyrir um áratug.

Þrjú þúsund bandarískir hermenn eru sagðir í Jórdaníu. Bandaríkjamenn eru með ólöglega herstöð á olíuslóðum í norð-austur Sýrlandi, þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi fyrirskipað alla hermenn frá Sýrlandi árið 2019, tilskipun sem Pentagon virti að vettugi. N-Austur Sýrland er hernumið og landið arðrænt með því að olíu er dælt upp, send í olíubílalestum til Írak og þýfið selt til Evrópu svo sem ég hef áður upplýst; sturlað sjónarspil.

BIDEN HEITIR HEFNDUM

Biden á kosningafundi í S-Karólínu heitir hefnda: „Við munum bregðast við,“ sagði forsetinn. Að sögn Reuters, kveður Biden-stjórnin öfgahópa í Sýrlandi og Írak, sem studdir eru af Íran, vera að baki árásinni. „Velkist ekki í vafa, við munum láta þá, sem að verki voru, gjalda fyrir ódæðið þegar tími er réttur,“ sagði talsmaður Pentagon. Íran hefur neitað aðild að árásinni. „Það eru átök milli bandarískra hersveita og andspyrnuhópa á svæðinu,“ sagði Teheran. Talsmaður Hamas segir að árásin á Turn 22 sé bein afleiðing Gaza. Það er stríð í Mið-Austurlöndum.

NEO-CONS KREFJAST ÁRÁSA Á ÍRAN

Raunar endurtekur sagan sig. Hvar sem bandarískar hersveitir eru staðsettar í Mið-Austurlöndum, myndast andspyrnusveitir sem hefja árásir. Herstöðin Turn 22 hlaut að vera skotmark. Þegar ráðist er á ameríska hermenn krefjast stríðsæsingamenn; neo-cons hefnda. Nú skammast þeir út í vanmátt Biden. Leiðtogi repúblikana í þinginu, hinn seníli Mitch McConnell sem reglulega frýs frammi fyrir fréttamönnum, kveður aðgerðaleysi Biden styrkja óvini Ameríku.

Það átti bregðast við árásinni áður en hugrakkir Bandaríkjamenn létust,“ sagði McConnell. Tom Cotton þingmaður frá Texas: „Gereyðandi aðgerðir eru eina svarið gegn írönskum vígasveitum … Öðrum kosti er Joe Biden heigull,“ sagði Cotton.

Lindsey Graham frá Gerogíu krefst árása á Íran; to strike targets in Iran. Graham segir árásir ekki bara til að hefna, heldur koma í veg fyrir árásir. Ég hef sagt ykkur frá för Lindsey Graham til Mariepol í Úkraínu 2016 þegar hann hét hermönnum Azov-nazista fé og vopnum til árása á rússnesku mælandi borgara Donbass. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra gerir vel að hvetja Biden-stjórnina að hefja friðarferli líkt og var á árunum 2017-2021 þegar friður ríkti á Gaza, Arabaríki hófu að taka  upp stjórnmálasamband við Ísrael og hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Mið-Austurlöndum líkt og áformað var en Pentagon stöðvaði. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila