Ný fórnarlömb stíga fram í Epstein-rannsókn í Frakklandi

Um tíu ný meint fórnarlömb hafa stigið fram í umfangsmikilli rannsókn franskra yfirvalda á tengslaneti bandaríska auðkýfingsins Jeffrey Epstein sem lést í fangelsi árið 2019. Frönsk stjórnvöld hófu rannsókn á mansali fyrr á þessu ári eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti ný gögn úr Epstein-málinu í janúar. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort brot hafi verið framin í Frakklandi eða hvort franskir aðilar hafi átt þátt í að auðvelda glæpi hans. Þetta kemur fram í frétt Euronews.

Saksóknarinn í París, Laure Beccuau, sagði í viðtali við RTL að um tuttugu meint fórnarlömb hefðu haft samband við yfirvöld eftir að kallað var opinberlega eftir vitnisburði í febrúar. Um helmingur þeirra hafi áður verið þekktur í rannsókninni en um tíu einstaklingar hafi komið fram sem rannsakendur höfðu ekki áður upplýsingar um.

Yfirvöld yfirheyra fórnarlömb víða um heim

Beccuau sagði að rannsóknarteymið legði nú áherslu á að taka skýrslur af þeim sem stigið hafa fram. Nokkur fórnarlambanna búi erlendis og því sé unnið að því að skipuleggja fundi þegar viðkomandi geti komið til Parísar.

Rannsakendur fara jafnframt ítarlega yfir svokölluð Epstein-skjöl, þar á meðal tölvur hans, símaskrár og nafnaskrár, í leit að nöfnum og tengingum sem meint fórnarlömb hafa bent á. Þá hefur Frakkland óskað eftir alþjóðlegri aðstoð við rannsóknina.

Íbúð Epstein í París rannsökuð

Frönsk yfirvöld gerðu húsleit í lúxusíbúð Epstein í París í september 2019, skömmu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa í New York.

Meðal þeirra sem áður höfðu komið við sögu rannsóknarinnar eru konur sem gáfu skýrslu í tengslum við rannsókn á Gerald Marie, fyrrverandi yfirmanni evrópskrar fyrirsætuskrifstofu, og Jean-Luc Brunel, umboðsmanni fyrirsæta sem lést í fangelsi árið 2022.

Fimmtán konur kröfðust þess í mars að frönsk yfirvöld rannsökuðu tengsl Marie við Epstein. Eldri rannsókn á ásökunum um kynferðisbrot Marie var hins vegar felld niður árið 2023 þar sem meint brot voru talin fyrnd.

Fyrrverandi fyrirsætur lýsa tengslum við Epstein

Tvær fyrrverandi fyrirsætur hafa einnig lýst því að umboðsmaður að nafni Daniel Siad hafi reynt að undirbúa þær fyrir fundi með Epstein annars vegar og Gerald Marie hins vegar.

Saksóknarinn sagði að enn sem komið er hafi enginn þeirra sem gætu mögulega tengst málinu verið yfirheyrður formlega.

Jeffrey Epstein játaði árið 2008 brot sem tengdust vændi ólögráða stúlku og afplánaði síðar fangelsisdóm áður en hann var látinn laus á skilorði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila