Nýjar reglur ESB gætu hækkað kaffiverð umtalsvert

Áform Evrópusambandsins um hertar reglur um varnarefnaleifar í innfluttum matvælum gætu leitt til verulegra verðhækkana á ýmsum vörum. Kaffi, sítrusávextir og ber eru meðal þeirra vara sem gætu hækkað í verði verði tillögurnar að veruleika. Þetta segir í frétt Politico.

Greining Sameiginlegu rannsóknarmiðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB, JRC, bendir til þess að hertar reglur geti bæði dregið úr innflutningi landbúnaðarvara og hækkað verð til neytenda.

Kaffi gæti hækkað um 332%

Í ýtrustu sviðsmynd rannsóknarinnar, þar sem framleiðendur utan ESB laga framleiðslu sína ekki að nýju reglunum, gæti verð á kaffi hækkað um 332% og verð á sítrusávöxtum um 82%. Innflutningur landbúnaðarvara til ESB gæti jafnframt dregist saman um 41%.

Rannsakendur telja þessa sviðsmynd þó ólíklega. Í raunhæfari sviðsmyndum, þar sem erlendir framleiðendur laga sig að reglunum að einhverju leyti, er engu að síður gert ráð fyrir hærra vöruverði og minni innflutningi.

Hærra fóðurverð gæti einnig haft áhrif á evrópska búfjárframleiðendur.

Vilja sömu kröfur á innfluttar vörur

Tillögurnar snúa að varnarefnum sem hafa verið bönnuð innan ESB vegna áhrifa þeirra á heilsu eða umhverfi. Markmiðið er að koma í veg fyrir að leifar tiltekinna efna berist inn á evrópskan markað með innfluttum matvælum.

Evrópskir bændur hafa stutt slíkar reglur og telja þær stuðla að jafnari samkeppnisstöðu gagnvart framleiðendum utan sambandsins. Til að tryggja að engar leifar tiltekinna efna finnist á vörunum gætu erlendir framleiðendur í reynd þurft að hætta notkun þeirra.

Framkvæmdastjórn ESB hefur þó ekki enn ákveðið nákvæmlega hvaða varnarefni falli undir reglurnar. JRC greindi 18 virk efni sem hugsanlega gætu orðið fyrir banninu. Þau tengjast 235 vöruflokkum og viðskiptum við 86 ríki.

Erlendir framleiðendur óttast viðskiptahindranir

Framleiðendasamtök utan ESB hafa varað við því að reglurnar geti orðið að viðskiptahindrun og bent á að ræktunarskilyrði, meindýr og loftslag séu mismunandi eftir heimshlutum.

Nokkur ríki, þar á meðal Bandaríkin, Kanada, Ástralía og Paragvæ, hafa þegar gert athugasemdir við áformin innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Framkvæmdastjórn ESB segir að ákvarðanir um einstök efni verði teknar í hverju tilviki fyrir sig og að meðal annars verði tekið tillit til fæðuöryggis innan sambandsins og mögulegra áhrifa á alþjóðaviðskipti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila