
Nýjar reglur Evrópusambandsins um umbúðir og umbúðaúrgang fela í sér auknar kröfur til fyrirtækja sem senda vörur til viðskiptavina í öðrum ríkjum sambandsins. Breytingarnar geta komið sérstaklega hart niður á netverslunum þar sem kostnaður og umsýsla vegna sölu yfir landamæri getur aukist verulega. Fjallað er um málið á Youtube rásinni Survival Lilly.
Kostnaður fylgir hverju markaðssvæði
Fyrirtæki þurfa viðurkenndan fulltrúa í hverju ESB-ríki sem þau senda vörur til. Kostnaður við slíkan fulltrúa getur numið 500 til 600 evrum á ári fyrir hvert land og skráningarskyldan tekur gildi frá fyrstu seldu vörunni.
Netverslun sem selur vörur til 10 ESB-ríkja gæti þannig þurft að greiða 5.000 til 6.000 evrur á ári vegna þessarar kröfu. Þegar aðeins fáar vörur eru seldar til ákveðins lands getur kostnaðurinn orðið meiri en framlegðin af sölunni.
Umbúðir kalla á sérstaka skjölun
Auknar kröfur ná einnig til umbúðanna sjálfra. Pappakassar og aðrar umbúðir sem notaðar eru við vörusendingar þurfa samræmisyfirlýsingu og uppfylla kröfur um efnaöryggi. Einnig þarf að merkja og skjalfesta umbúðir með viðeigandi hætti.
Noti fyrirtæki mismunandi tegundir umbúða fyrir vörur sínar þarf sérstaka samræmisyfirlýsingu fyrir hverja tegund. Þetta eykur bæði kostnað og stjórnsýslu fyrirtækja og getur orðið sérstaklega íþyngjandi fyrir rekstraraðila sem senda tiltölulega fáar vörur til margra ríkja.
Netverslanir hætta sendingum til annarra ESB-ríkja
Áhrifanna er þegar farið að gæta meðal fyrirtækja í Austurríki og Þýskalandi. Nokkur þeirra hafa tilkynnt að þau hætti sendingum til annarra ESB-ríkja eða leggi starfsemina niður vegna aukins kostnaðar og umsýslu. Austurrísk netverslun sem áður seldi bæði innanlands og til Þýskalands hefur meðal annars lokað fyrir sendingar til Þýskalands og selur nú aðeins á heimamarkaði.
Stærri fyrirtæki hafa meira bolmagn til að ráða starfsfólk sérstaklega til að sinna regluvörslu og skjölun. Fyrir minnstu fyrirtækin getur fastur kostnaður við að selja inn á marga markaði hins vegar orðið það mikill að sala yfir landamæri borgi sig ekki lengur.
