
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Hlutabréf líftæknifyrirtækisins Moderna hækkuðu um tæp 177% á miðvikudag og lokuðu í 174,38 dölum á hlut, eftir að fyrirtækið og Merck greindu frá því að sameiginlegt bóluefni þeirra hefði náð meginmarkmiði sínu í þriðja stigs klínískri rannsókn á sortuæxlum. Veltan nam 185 milljónum hluta, eða um 1.800% umfram þriggja mánaða meðaltal, og hlutabréf BioNTech hækkuðu samhliða um tæp 22%.
Ítarlegar niðurstöður kynntar síðar
Bóluefnið, sem ber heitið intismeran autogen og er sérsniðið að hverjum sjúklingi. Æxli sjúklingsins er raðgreint, stökkbreytingar þess kortlagðar og mRNA-ið kennir ónæmiskerfinu að þekkja þau prótínbrot sem æxlið eitt framleiðir. Í rannsókninni fengu 1.137 sjúklingar með sortuæxli á stigi IIb–IV, sem fjarlægð höfðu verið með skurðaðgerð, annaðhvort bóluefnið ásamt Keytruda eða Keytruda eitt og sér. Samsetningin dró marktækt úr endurkomu meinsins og einnig úr hættu á að það dreifði sér til annarra líffæra, án nýrra vísbendinga um aukaverkanir. Ítarlegar niðurstöður hafa ekki verið birtar en verða kynntar á læknaþingi síðar. Þetta er í fyrsta sinn sem persónusniðið krabbameinsbóluefni sýnir árangur í þriðja stigs rannsókn.
Sortuæxlistilfellum fjölgar
Hér á landi greinast að jafnaði um fimmtíu manns á ári með sortuæxli í húð og níu Íslendingar látast árlega af völdum þeirra samkvæmt eldri samantekt Krabbameinsskrár. Sortuæxlum hefur fjölgað verulega undanfarna áratugi og þau eru algengari meðal kvenna hér en í nágrannalöndunum, auk þess að vera algengasta krabbamein kvenna á aldrinum 15–34 ára. Horfur ráðast fyrst og fremst af því hversu djúpt meinið er vaxið þegar það greinist, og þar skiptir hver mánuður máli.
Bið eftir tíma hjá heimilslækni 27 dagar
Það er einmitt á þeim punkti sem íslenska heilbrigðiskerfið stendur höllum fæti. Viðmið embættis landlæknis gera ráð fyrir viðtali hjá heilsugæslulækni innan fimm daga og skoðun hjá sérfræðingi innan þrjátíu daga. Raunveruleikinn er annar: meðalbið eftir tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu mældist 27 dagar fyrr á þessu ári og fór upp í 115 daga þar sem hún var lengst, og biðin eftir sérfræðingum í húðlækningum getur að sögn sjúklinga teygt sig í allt að 18 mánuði. Á meðan bóluefni sem lengir sjúkdómsfrítt líf sjúklinga eftir aðgerð fær Wall Street til að tvöfalda verðmæti heils fyrirtækis á einum degi bíður íslenskur sjúklingur með breyttan fæðingarblett í tvö ár eftir því að einhver líti á hann.
Það er löngu tímabæært að ríkisstjórn Íslands hysji upp um sig íslensku skinnbrækurnar og fari að sinna þörfum íslenskra sjúklinga eins og þær lofuðu fyrir kosningar. Fyrir skömmu var það upplýst að utanríkisráðherra landsins hafi eytt a.m.k 40 milljörðum á örfáum mánuðum í “varnarmál og varnartengd gjöld”!
Hvað kosta annars vandaðar nábrækur í dag?
