
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna á Íslandi. Samkvæmt Krabbameinsskrá greindust að meðaltali 272 konur árlega á árunum 2020–2024, eða rúmlega fimm á viku! Það samsvarar um 27% allra nýgreindra krabbameina meðal kvenna. Á sama tímabili létust að meðaltali 51 kona á ári af völdum sjúkdómsins. Þessar tölur ná til allra gerða brjóstakrabbameins.
Lyfið trastuzumab rezetecan lengdi verulega líftíma kvenna með langt gengið brjóstakrabbamein án þess að sjúkdómurinn versnaði, samanborið við hefðbundna krabbameinslyfjameðferð. Þetta kemur fram í slembirannsókninni HORIZON-Breast06, sem kynnt er í JAMA.
Rannsóknin náði til 551 konu á aldrinum 18–75 ára við 73 sjúkrahús í Kína. Þær voru með óskurðtækt, staðbundið endurkomið brjóstakrabbamein eða sjúkdóm með meinvörpum og litla tjáningu á próteininu HER2, einnig nefnt ERBB2. Þessi æxli nefnast HER2-low og falla utan hefðbundins flokks HER2-jákvæðra brjóstakrabbameina.
Konunum var skipt af handahófi í tvo hópa. Annar fékk trastuzumab rezetecan í æð á þriggja vikna fresti en hinn krabbameinslyfjameðferð að vali læknis. Flestar höfðu ekki áður fengið krabbameinslyfjameðferð við sjúkdómi með meinvörpum. Konur með hormónaviðtakajákvæð æxli höfðu áður fengið hormónameðferð.
Miðgildi tímans þar til sjúkdómurinn versnaði eða dauðsfall varð var 16,4 mánuðir með nýja lyfinu, samanborið við 6,8 mánuði með samanburðarmeðferðinni. Áætluð áhætta á versnun eða dauða á eftirfylgdartímanum var 73% minni í hópnum sem fékk trastuzumab rezetecan.
Ávinningur sást bæði hjá konum með hormónaviðtakajákvæð og hormónaviðtakaneikvæð æxli. Niðurstöðurnar bæta sérstaklega við þekkingu á meðferð síðarnefnda hópsins áður en hefðbundin krabbameinslyfjameðferð við meinvörpum hefst.
Lyfið tengir saman mótefni, sem binst HER2-próteininu, og öflugt frumudrepandi efni. Þannig er lyfinu beint að krabbameinsfrumunum þótt tjáning HER2 sé lítil.
Góðum árangri fylgdu þó verulegar aukaverkanir. Meðferðartengdar aukaverkanir af þriðju gráðu eða hærri komu fram hjá 84,1% kvenna sem fengu nýja lyfið, samanborið við 67,9% í samanburðarhópnum. Algengust var fækkun daufkyrninga, hvítra blóðkorna sem gegna mikilvægu hlutverki í vörnum gegn sýkingum.
Niðurstöðurnar benda til að trastuzumab rezetecan geti orðið mikilvægur meðferðarkostur fyrir afmarkaðan hóp sjúklinga. Enn liggja þó ekki fyrir nægilega ítarleg gögn til að staðfesta lengri heildarlifun. Rannsóknin bar lyfið heldur ekki saman við sambærileg mótefnatengd lyf sem þegar eru notuð við HER2-low brjóstakrabbameini.
Lyfið trastuzumab, þekkt undir heitinu Herceptin, hefur lengi verið notað við HER2-jákvæðu brjóstakrabbameini á Íslandi. Trastuzumab rezetecan, sem rannsóknin fjallar um, er annað lyf, þar sem mótefnið er tengt öflugu frumudrepandi efni. Ekki liggja hér fyrir staðfestar upplýsingar um notkun þess á Íslandi.
Ný lyf eru dýr. Ísland hefur lagt metnað sinn í að styrkja vopnakaup í útlöndum, ýmsa heimskulega loftslagssjóði og loftslagsskatta svo og nær óheftan innflutning hælisleitenda til landsins. Því mega nýju krabbameinslyfin bíða um sinn.
