Obama Gate tengt umfangsmikilli spillingu innan stjórnkerfisins

Grein sem birt hefur verið á vefsíðunni Fall of the Cabal dregur upp mynd af umfangsmikilli spillingu innan bandarískra stjórnkerfisins þar sem fram kemur að Barack Obama, Hillary Clinton og háttsettir embættismenn innan FBI og leyniþjónustunnar hafi tengst aðgerðum gegn Donald Trump fyrir og eftir forsetakosningarnar árið 2016. Greinina má lesa með því að smella hér.

Málið hefur gengið undir heitinu „Obama Gate“ og því skipt upp í fjóra meginþætti. Þar er fjallað um njósnir gegn forsetaframboði Trump, rannsóknir á meintum tengslum hans við Rússland, tvær ákærur gegn Trump og tilraunum til að hylma yfir málið.

Crossfire Hurricane

Í greininni er fjallað ítarlega um FBI-rannsóknina Crossfire Hurricane sem hófst sumarið 2016 vegna gruns um afskipti Rússa af forsetakosningunum og tengsl við framboð Donald Trump. Fram kemur að Tulsi Gabbard hafi lagt fram gögn sem sýni að Barack Obama hafi sjálfur fyrirskipað bandarísku leyniþjónustunni að útbúa upplýsingar sem gætu réttlætt rannsóknina og tengt Trump við Rússland.

Þar eru birt orð Gabbard þar sem hún segir Obama og öryggisteymi hans hafa staðið að skipulagðri aðgerð til að grafa undan kjörnum forseta Bandaríkjanna og að upplýsingar sem lágu til grundvallar rannsókninni hafi verið rangar frá upphafi.

Steele-skýrslan uppspuni

Greinin fjallar einnig um hina svokölluðu Steele-skýrslu sem varð lykilatriði í rannsóknunum á Trump og meintum tengslum hans við Rússland. Þar kemur fram að rannsóknir Robert Mueller og sérstaka saksóknarans John Durham hafi ekki fundið sannanir fyrir samráði milli Trump og rússneskra stjórnvalda.

Þá segir jafnframt að Steele-skýrslan hafi verið fjármögnuð af forsetaframboði Hillary Clinton með aðstoð rannsóknarfyrirtækisins Fusion GPS og að upplýsingarnar í henni hafi verið rangar eða ósannaðar. Einnig er greint frá því að fólk tengt kosningabaráttu Hillary Clinton hafi komist inn á netþjóna í Trump Tower og síðar Hvíta húsinu í leit að gögnum sem gætu tengt Trump við Rússland.

Hillary vildi beina athygli frá tölvupóstamálinu

Í greininni er því lýst að Hillary Clinton hafi viljað beina athygli almennings frá deilum um einkatölvupóstþjón hennar og þúsundir eyddra tölvupósta með því að ýta undir rannsóknir á Trump og Rússlandi. Þar er einnig rifjað upp Uranium One-samkomulagið þar sem Clinton Foundation fékk milljónagreiðslur frá aðilum tengdum Rússlandi á sama tíma og rússnesk fyrirtæki fengu aðgang að hluta af bandarískri úransframleiðslu..

Ákærur gegn Trump hluti af sömu aðgerð

Bent er á að báðar þær ákærur gegn Donald Trump sem rætt er um í greininni hafi byggst á upplýsingum frá embættismönnum leyniþjónustunnar sem komu einnig að rannsóknunum á Trump og Rússlandi. Þar er sérstaklega fjallað um símtal Trump og Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta sem varð grundvöllur fyrri ákærunnar árið 2019. Í fréttinni kemur fram að heimildirnar sem lágu að baki málinu hafi síðar reynst byggðar á óbeinum upplýsingum og vitnisburði fólks sem ekki hafði beina þekkingu á atvikunum.

Fjölmiðlar hylmdu yfir málið

Í lok greinarinnar kemur fram að bandarískir fjölmiðlar hafi tekið þátt í því að hylma yfir málið með því að verja stjórnmálamenn og ráðast gegn þeim sem reyndu að afhjúpa meint samsæri innan stjórnkerfisins. Tulsi Gabbard er sögð vinna að því að koma öllum upplýsingum málsins fyrir almenning og tryggja að ábyrgð verði dregin fram vegna þeirra aðgerða sem lýst er í greininni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila