
Barack Obama hefur árum saman unnið markvisst að því að veikja Bandaríkin innan frá með stuðningi háttsettra embættismanna og áhrifafólks innan stjórnkerfisins. Þetta segir í nýrri grein á vefnum Fall of the cable.
Í greininni er vísað til svokallaðra „Q“-færslna sem birtust fyrst árið 2017 og tengjast QAnon-hreyfingunni. Þar kemur fram að Donald Trump hafi frá upphafi vitað af umfangsmiklu samsæri innan bandarískra stjórnvalda og að nú standi yfir skipulögð afhjúpun undir forustu Trump á málinu.
Tulsi Gabbard í lykilhlutverki
Í greininni segir að Tulsi Gabbard hafi gegnt lykilhlutverki við að koma upplýsingum um málið til almennings og að bandarískir fjölmiðlar hafi árum saman haldið upplýsingunum leyndum fyrir almenningi.
Þá segir að Barack Obama, Hillary Clinton, Joe Biden og fleiri fyrrverandi embættismenn hafi með markvissum hætti átt að tryggja áframhaldandi stjórn sömu afla innan bandaríska stjórnkerfisins.
Obama sagður hafa notast við falsað fæðingarvottorð
Greinin rifjar upp frásagnir um að Barack Obama hafi notast við falsað fæðingarvottorð og að hann hafi því aldrei átt rétt á því að gegna embætti forseta Bandaríkjanna.
Þar er einnig fjallað um kjarnorkusamninginn við Íran, greiðslur bandarískra stjórnvalda til Írans og stefnu Obama gagnvart Norður-Kóreu. Þetta sé hluti af aðgerðum í skipulagðri áætlun til að veikja bandarískt samfélag og hernaðarmátt. Jafnframt kemur fram að Hillary Clinton hafi átt að halda þeirri stefnu áfram eftir forsetakosningarnar árið 2016 en að sigur Donald Trump hafi stöðvað þá áætlun.
Herinn og leyniþjónustan vissu af málinu
Í greininni kemur fram að bæði bandaríska leyniþjónustan og herinn hafi vitað af aðgerðum Obama árum saman. Þar er sérstaklega vísað til þess að leyniþjónustan hafi notað dulnefnið „Renegade“ yfir Obama og að yfirvöld hafi litið á hann sem svikara. Þá segir að að hernaðardómstólar muni síðar taka málið fyrir þar sem hefðbundið réttarkerfi Bandaríkjanna sé spillt og ófært um að takast á við málið.
