Óefnd loforð Dana vekja vaxandi reiði á Grænlandi

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Atla Lilliendahl, framkvæmdastjóra sem bjó á Grænlandi í yfir 30 ár í síðdegisútvarpinu, um stöðuna á Grænlandi og samskiptin við Dani. Atli sagði Dani ítrekað hafa ekki staðið við loforð sín gagnvart Grænlendingum og óánægja vegna þessa færi vaxandi í grænlenskum stjórnmálum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Enn ekki samið um smíði varðskipanna

Atli sagði Dani hafa lofað fyrir 2 árum að byggja 2 varðskip sem ættu að sinna siglingum við Grænland. Þrátt fyrir það hefði enn ekki verið skrifað undir samning um smíði skipanna.

Hann vísaði til þess að Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, hefði nýlega gagnrýnt Dani vegna tafanna í dönskum fjölmiðlum. Atli sagði málið enn eitt dæmið um loforð Dana sem ekki hefðu verið efnd.

Ekki tókst að manna skipin

Vandinn væri ekki bundinn við ný skip. Atli sagði dönsk varðskip hafa átt að fara í eftirlitsferð við Grænland en hætta hefði þurft við ferðina þar sem ekki tókst að manna skipin.

Skipin hefðu því legið í höfn í stað þess að sinna fyrirhuguðu eftirliti við Grænlandsstrendur. Atli sagði stöðuna vekja vaxandi reiði í grænlenskum stjórnmálum.

Áhugi Bandaríkjanna eykur þrýsting á Dani

Atli tengdi þróunina einnig auknum áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi. Hann sagði sjálfstraust Grænlendinga hafa aukist eftir að mesti hasarinn í kringum yfirlýsingar Donalds Trump lægði.

Aukinn áhugi Bandaríkjamanna hefði jafnframt sett meiri þrýsting á Dani um að standa við loforð sín gagnvart Grænlandi. Danir hefðu hvað eftir annað orðið uppvísir að því að standa ekki við þau.

Atli sagði Grænlendinga því hafa ástæðu til að taka nýjum loforðum með fyrirvara. Þeir hefðu þegar brennt sig á óefndum loforðum og mörg þeirra væru enn uppi á borðinu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila