
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ögmund Jónasson fyrrverandi ráðherra og alþingismann í Síðdegisútvarpinu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. Ögmundur sagði réttara að spyrja þjóðina beint, hvort hún vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið fremur en að greiða atkvæði um sérstakar viðræður. Ögmundur sagðist telja ólíklegt að þjóðin muni styðja aðild að ESB. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vill beina afstöðu til aðildar
Í máli Ögmundar kom fram, ef Ísland ákveði að ganga í Evrópusambandið felist í því að ríkið undirgangist stóran hluta regluverks sambandsins og viðurkenni yfirþjóðlegt dómsvald þess. Hann sagði að slíkar skuldbindingar lægju í meginatriðum fyrir og því væri eðlilegast að þjóðin tæki afstöðu til sjálfrar aðildarinnar. Með inngöngu í sambandið færðist vald, í auknum mæli, frá þjóðríkjum til sameiginlegra stofnana sambandsins og Evrópusambandið hefði á síðustu áratugum, þróast í átt að sífellt samþættara stjórnkerfi.
Telur ólíklegt að þjóðin styðji aðild
Ögmundur sagði að hann telji ólíklegt að meirihluti Íslendinga myndi styðja aðild að Evrópusambandinu ef málið yrði lagt fyrir þjóðina með skýrri spurningu. Ögmundur sagði að í hans huga væri mikilvægt að umræðan færi fram á skýrum forsendum þar sem kjósendur tækju afstöðu til grundvallarspurningarinnar um aðild Íslands að sambandinu og geti valið um svarið, já eða nei.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
