Okkar borg-Þvert á flokka: Leggjast gegn Borgarlínu

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson, fulltrúa flokksins Okkar borgar-Þvert á flokka, í Síðdegisútvarpinu um samgöngumál og skipulagsstefnu Reykjavíkurborgar. Þar kom fram að þeir telji fyrirhugaðar framkvæmdir við Borgarlínu og breytingar á bílastæðastefnu hafa víðtæk áhrif á aðgengi, kostnað og daglegt líf borgarbúa. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Borgarlínan og möguleg gjaldtaka

Þeir segja að stefna Okkar borgar geri ráð fyrir að framkvæmdum við Borgarlínu verði hætt og að samgöngukerfið verði endurskoðað með öðrum hætti. Baldur Borgþórsson benti á að fyrir liggi áform um gjaldtöku vegna samgönguframkvæmda sem gætu haft neikvæð áhrif á ferðir innan borgarinnar. Sigfús Aðalsteinsson sagði að samkvæmt stefnu flokksins verði í staðinn lögð áhersla á breytingar á leiðakerfi almenningssamgangna með það að markmiði að bæta nýtingu þess og draga úr ferðakostnaði heimila.

Skipulag og aðgengi að bílastæðum

Einnig voru skipulagsmálin í miðborg Reykjavíkur til umræðu og sögðu þeir að fækkun bílastæða og breytingar á umferðarstýringu hefðu haft áhrif á aðgengi að verslun og þjónustu. Þar kom fram að í nýjum íbúðabyggðum hafi verið gerðar takmarkanir á fjölda bílastæða sem fylgja hverri íbúð. Þá sögðu þeir að kæmist flokkurinn il valda í borginni yrðu skipulagsreglur endurskoðaðar með það að markmiði að tryggja bílastæði við íbúðarhúsnæði þar sem því verður við komið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila