
Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, beindi harðri gagnrýni að Evrópusambandinu í ræðu sem hann flutti á 70 ára afmæli Frelsisflokks Austurríkis (FPÖ). Þar sagði hann að stefna Brussel væri að grafa undan efnahag Evrópu, veikja fullveldi aðildarríkjanna og bregðast í innflytjenda-, efnahags- og öryggismálum.
Orbán sagði að Evrópa þyrfti færri embættismenn og meiri framleiðslu, fleiri frumkvöðla og aukið efnahagslegt frelsi. Að hans mati væru viðskiptaþvinganir, skrifræði, hátt orkuverð og grænar reglur Evrópusambandsins að skaða evrópskt atvinnulíf.
Segir Brussel hafa brugðist í lykilmálum
Í ræðunni sagði Orbán að stjórnmálaforysta Brussel hefði brugðist þegar kæmi að fjöldainnflytjendum, efnahagsmálum og stríðinu í Úkraínu.
Hann gagnrýndi innflytjendastefnu Evrópusambandsins og sagði að landamæri hefðu verið opnuð án þess að tekið væri tillit til afleiðinganna. Að hans sögn hefðu Evrópubúar verið látnir sætta sig við aukna glæpatíðni, myndun hliðstæðra samfélaga og smám saman tap menningarlegrar sjálfsmyndar.
Orbán sagði að þjóðrækisflokkar vildu að aðildarríkin sjálf réðu því hverjum væri heimilt að koma inn í lönd þeirra og bætti við að engir innflytjendur væru nú í Ungverjalandi.
Vill samningaviðræður um Úkraínu
Orbán gagnrýndi einnig stefnu Evrópu í stríðinu í Úkraínu og sagði að stuðningur við hernaðinn hefði hvorki skilað sigri né friði.
Að hans mati ættu Evrópuríki að leggja áherslu á friðarviðræður fremur en áframhaldandi vopna- og fjárstuðning. Hann sagði að fyrsta skylda evrópskra leiðtoga væri að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu stríðsins og tryggja öryggi borgaranna.
Segir þjóðræknishreyfingar sækja í sig veðrið
Orbán sagði að þjóðræknisflokkar nytu vaxandi stuðnings víða um Evrópu, meðal annars í Frakklandi, Ítalíu, Hollandi, Portúgal, Tékklandi og á Spáni.
Hann sagði að hefðbundnir vinstri- og mið-hægriflokkar væru orðnir tveir armar sama stjórnkerfis í Brussel en að þjóðrækishreyfingarnar stæðu fyrir valkosti sem byggði á fullveldi þjóðríkja, vernd landamæra, kristinni arfleifð Evrópu og auknu valdi almennra borgara.
