Orbán vill endurmóta Evrópusambandið og draga úr valdi framkvæmdastjórnarinnar

Viktor Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, segir að hann hafi lítnn áhuga á völdum innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heldur sé það hans mat að endurmóta eigi stofnanakerfi sambandsins og færa vald aftur til aðildarríkjanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þar sem Orbán sagði að vandinn lægi ekki hjá forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heldur í því hvernig stofnunin hefði þróast á undanförnum árum.

Vill draga úr valdi framkvæmdastjórnarinnar

Orbán sagði að framkvæmdastjórnin ætti ekki að vera pólitísk valdamiðstöð heldur stofnun sem annast fyrst og fremst samræmingu og framkvæmd sáttmála Evrópusambandsins.

Að hans sögn þurfi föðurlandssinnaðir stjórnmálamenn að ná auknum áhrifum innan stofnanakerfis Evrópusambandsins til að endurreisa það valdajafnvægi sem áður ríkti milli aðildarríkjanna og sameiginlegra stofnana sambandsins.

Hann sagði jafnframt að markmiðið væri ekki að taka við embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar heldur að draga úr valdi embættisins og færa það aftur í fyrra horf.

Segir breytingarnar hafa hafist árið 2015

Orbán rakti breytingarnar til ársins 2015 og sagði að þar hefðu orðið þáttaskil þegar framkvæmdastjórnin hefði í auknum mæli farið að starfa sem pólitísk stofnun í stað þess að sinna því hlutverki sem henni væri ætlað samkvæmt sáttmálum Evrópusambandsins.

Að mati Orbáns hafi það raskað valdajafnvægi innan sambandsins þannig að framkvæmdastjórnin og embættismannakerfi Brussel hafi fengið sífellt meiri áhrif á kostnað aðildarríkjanna.

Hann sagði því nauðsynlegt að endurreisa það fyrirkomulag sem áður hefði gilt og færa meira vald aftur til ríkisstjórna aðildarríkjanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila