Ósatt að Ísland hafi innleitt meirihluta ESB-reglna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra í Síðdegisútvarpinu um fullyrðingar í umræðunni um Evrópusambandið þess efnis, að Ísland hafi þegar innleitt meirihluta regluverks sambandsins. Guðlaugur Þór sagði að slíkar fullyrðingar ættu sér ekki stoð í opinberum gögnum og að hlutfallið væri mun lægra en oft væri haldið fram. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Opinber gögn sýni fram á að Ísland hafi ekki innleidd meirihluta reglna

Í umræðunni sagði Guðlaugur að stundum væri því haldið fram að Ísland hefði þegar tekið upp 75–80% af regluverki Evrópusambandsins. Hann sagði að slíkar tölur væru rangar og að opinber gögn sýndu allt aðra mynd. Hann vísaði til skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2018 þar sem fram kemur að innleiðing íslenskrar löggjafar á reglum Evrópusambandsins hafi verið um 13,4%. Sú tala byggi meðal annars á upplýsingum frá Eftirlitsstofnun EFTA.

EES-samningurinn skýrir stöðuna

Hann benti á að þær reglur sem Ísland hefði tekið upp tengdust fyrst og fremst aðild landsins að Evrópska efnahagssvæðinu. Með EES-samningnum taki Ísland þátt í innri markaði Evrópu og innleiði því ákveðnar reglur sem tengjast frjálsu flæði vöru, þjónustu, fjármagns og fólks. Hann sagði jafnframt að stórir málaflokkar Evrópusambandsins væru utan EES-samningsins. Þar nefndi hann meðal annars fiskveiðar, landbúnað, tollamál og nýtingu auðlinda. Í þeim málum hefðu íslensk stjórnvöld áfram fullt ákvörðunarvald.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila