Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum

Almannavarnir á Austurlandi vara við aukinni snjóflóðahættu eftir að Veðurstofan lýsti yfir óvissustigi vegna veðurskilyrða á Austfjörðum.

Talsverð ofankoma fram á morgun

Samkvæmt upplýsingum er búist við talsverðri ofankomu í kvöld og fram á morgun. Gul veðurviðvörun er í gildi á svæðinu.

Aðstæður geta skapað hættu á snjóflóðum og er fylgst grannt með þróun mála.

Fjallvegir gætu lokast

Gera má ráð fyrir að fjallvegir á Austfjörðum lokist í kvöld vegna veðurs og færðar.

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um færð áður en lagt er af stað.

Smelltu hér til þess að skoða færð á vegum.

Smelltu hér til þess að skoða vef Veðurstofu Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila