Óvissustigi lýst yfir á vegum vegna veðurs

Vegagerðin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem óvissustigi vegna gulrar viðvörunar er lýst yfir á vegum allt frá Suðausturlandi, Suðurlandi, Suðvesturlandi og að Vesturlandi.

Smelltu hér til þess að skoða kort af færð á vegum

Fólk er beðið að hafa í huga að vegir geti lokast með stuttum fyrirvara. Óvissustigið er í gildi frá kl.09:00 árdegis til kl.20:00 annað kvöld. Vegirnir þar sem óvissustig tekur gildi eru taldir upp fyrir neðan veðurspána sem hér fer eftir:

Veðurspá

Höfuðborgarsvæðið – Gul viðvörun.

Vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Líkur á samgöngutruflunum.

Suðurland – Gul viðvörun.

Vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Erfið akstursskilyrði og færð getur spillst.

Faxaflóasvæðið – Gul viðvörun.

Vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Erfið akstursskilyrði og færð getur spillst.

Breiðafjörður – Gul viðvörun.

Gengur í vestan 13-20 með dimmum éljum á Snæfellsnesi. Erfið aksturskilyrði og færð getur spillst.

Suðausturland – Gul viðvörun.

Vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni, en hægari vindur austantil á svæðinu. Erfið akstursskilyrði og færð getur spillst.

Á eftirfarandi vegum tekur óvissustig gildi kl.09:00 í fyrramálið og gildir til kl.20:00 annað kvöld:

Hellisheiði

Þrengsli

Mosfellsheiði

Kjalarnes

Hafnarfjall

Suðurstrandarvegur

Reykjanesbraut

Grindavíkurvegur

Lyngdalsheiði

Akrafjallshringur

Borgafjörður

Hvalfjörður

Mýrar

Hringvegur (1) milli Hveragerðis og Markarfljóts

Uppsveitir Suðurlands

og Árborgarhringur.

Krísuvíkurvegi verður lokað kl.06:00

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila