Oxfam gagnrýna rekjanleika loftslagssjóðs Alþjóðabankans

Ný skýrsla frá hjálparsamtökunum Oxfam hefur vakið athygli víða um heim eftir að þar kom fram að allt að 41 milljarður Bandaríkjadala í loftslagsfjármögnun Alþjóðabankans hafi ekki verið rekjanlegur með fullnægjandi hætti í opinberum gögnum. Samtökin segja erfitt að sjá nákvæmlega hvert fjármunirnir fóru og hvernig þeir voru nýttir eftir að verkefni voru komin af stað. Skýrsluna má lesa með því að smella hér.

Málið hefur verið mikið rætt á samfélagsmiðlum þar sem víða hefur verið fullyrt að fjármunirnir hafi horfið. Oxfam segir hins vegar að skýrslan sýni fyrst og fremst alvarlegan skort á gagnsæi og rekjanleika í bókhaldi og skráningu loftslagsverkefna.

Mikill munur á áætlunum og raunútgjöldum

Í skýrslunni „Climate Finance Unchecked“ skoðaði Oxfam loftslagsverkefni Alþjóðabankans á árunum 2017–2023. Þar kom fram að raunútgjöld verkefna hefðu oft vikið verulega frá þeim fjárhæðum sem upphaflega voru skráðar sem loftslagstengd fjármögnun. Að meðaltali hafi útgjöld verið 26–43% hærri eða lægri en upphaflegar áætlanir.

Oxfam telur að þessi munur geti samsvarað 24–41 milljarði dala yfir allt tímabilið. Samtökin segja að engin skýr opinber gögn sýni hvaða loftslagsaðgerðir hafi í raun verið fjármagnaðar þegar verkefnum lauk eða hvaða aðgerðir hafi verið felldar niður á leiðinni.

Alþjóðabankinn segir gögn ekki hafa verið skráð

Alþjóðabankinn segir að allar fjárhæðir séu bókfærðar og endurskoðaðar samkvæmt ströngum reglum og að engin gögn bendi til þess að milljarðarnir hafi horfið. Hins vegar hafi verið vanhöld á að nauðsynleg gögn hafi verið skráð inn í miðlægan gagnagrunn. Málið snúist því um aðferðir við skráningu loftslagsfjármögnunar og einnig hvernig hún sé metin á mismunandi stigum verkefna.

Deilt um gagnsæi loftslagsfjármögnunar

Oxfam tekur fram í skýrslunni að samtökin séu ekki að saka Alþjóðabankann um fjárdrátt eða spillingu heldur telji að núverandi kerfi geri almenningi og eftirlitsaðilum ómögulegt að sannreyna með fullnægjandi hætti hvernig stór hluti loftslagsfjármögnunar sé nýttur í framkvæmd. Málið kemur upp á sama tíma og Alþjóðabankinn hefur aukið loftslagsfjármögnun sína verulega. Bankinn greindi frá því að loftslagstengd fjármögnun hefði numið 42,6 milljörðum dala á fjárhagsárinu 2024, sem er hæsta tala í sögu stofnunarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila