Parísarsamkomulagið er plága!

Júlíus Valsson skrifar:

Laugardagsmorgunn í Reykjavík og ofnarnir farnir að hitna. Vatnið kemur úr iðrum jarðar og sinnir sínu án þess að gefin sé út sérstök yfirlýsing um það. Okkur þykir það sjálfsagt.

Í tyrknesku borginni Antalya er hins vegar verið að undirbúa þrítugasta og fyrsta loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna, sem hefst þ. 9. nóvember. Þar verður aftur rætt hvernig bjarga megi heiminum. Á meðan heldur hitaveitan á Ísland sínu striki.

Parísarsamkomulagið? Fyrir hverja? Til hvers?

Áratug eftir gildistöku Parísarsamkomulagsins stefnir í um 2,8 gráða hlýnun á þessari öld miðað við núverandi stefnu, samkvæmt Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna. Full efnd landsmarkmiða myndi færa töluna niður í 2,6 gráður. Stefnt var að því að halda hlýnun vel undir tveimur gráðum og leitast við að takmarka hana við 1,5. Enn er þar mjög langt í land. Ráðstefnuhaldið hefur þó náð ágætum stöðugleika og kostar sitt.

Þessar tölur sanna ekki að allar loftslagsaðgerðir séu gagnslausar. Þær gefa hins vegar fullt tilefni til að spyrja hvað fáist fyrir fjármunina. Sú spurning ætti að vera sérstaklega auðveld í litlu landi þar sem stjórnvöld segjast leggja áherslu á gagnsæi.

Reynslan bendir til annars.

Útgjöld Íslands til „loftslagsmála“

Samkvæmt svari fjármálaráðherra á Alþingi námu útgjöld og ívilnanir vegna loftslagsmála 144,3 milljörðum króna árin 2017–2024. Fyrir árin 2025–2029 voru áætlaðir 113,5 milljarðar til viðbótar. Þetta eru ólík tímabil og síðari talan er áætlun. Skattaívilnanir eru jafnframt tekjur sem ríkið afsalar sér, fremur en beinar greiðslur. Ekkert af þessu gerir ráðstöfunina ókeypis. Reikningurinn lendir að lokum hjá almenningi.

Hvað kostar þetta almenning á Íslandi?

Í sama ráðherrasvari kemur fram að skýrslu um framgang aðgerðaáætlunar hafi ekki verið skilað árin 2023 og 2024. Skýringin var meðal annars vinna við endurskoðun áætlunarinnar! Stjórnsýslan var sem sagt svo upptekin við að ákveða hvað ætti að gera að hún kom því ekki við að skýra frá því hvernig gengi. Fjárveitingarnar þurftu sem betur fer ekki að bíða eftir niðurstöðunni.

Skýrsla barst síðan loksins í október 2025. Tveggja ára gat í lögbundinni eftirfylgni hverfur þó ekki við það að næsta skýrsla finni loks leiðina til ráðherra. Venjulegur rekstraraðili fengi tæplega að útskýra fyrir eigendum sínum að uppgjörið hefði fallið niður vegna mikillar vinnu við næstu fjárhagsáætlun.

Jöklarnir hopa og breytingar á hafinu varða Íslendinga miklu. Einmitt þess vegna þarf að fara vel með fé. Alvara viðfangsefnisins veitir engum ráðherra undanþágu frá reikningsskilum. Hún gerir kröfuna um þau brýnni.

Áttavitinn dugar skammt gagnvart útgerðinni

Á sjó dugar skipstjóra lítt að sýna útgerðinni áttavitann þegar spurt er um aflann. Leiðarbókin þarf að vera færð og aflinn veginn. Í loftslagsmálum virðist stundum nægja að benda hátíðlega í rétta átt og senda reikninginn.

Ísland valdi jafnframt að taka þátt í sameiginlegum efndum með Evrópusambandinu.

Með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2019 voru reglur um meðal annars bindandi árlegan samdrátt í losun teknar inn í bókun 31 við EES-samninginn. Alþingi heimilaði staðfestinguna. Þetta var pólitísk ákvörðun íslenskra stjórnvalda og þau bera ábyrgð á henni.

Losum okkur við gagnslausar „alþjóðlegar skuldbindingar“ í loftslagsmalum!

Því nægir lítt að tala um úrsögn úr Parísarsamkomulaginu án þess að taka sérstaklega á skuldbindingunum í samstarfinu við ESB. Þar þarf að fara yfir kostnaðinn og svigrúm Íslands. Fyrir hverja dýra aðgerð á að liggja fyrir trúverðugt mat á því hversu mikil losun sparast og hvað hvert tonn kostar. Þegar niðurstöður liggja fyrir á að bera þær saman við loforðin. Verkefni sem standast ekki slíka skoðun eiga að missa fjárveitinguna.

Það heitir ábyrg meðferð almannafjár. Hún ætti að vera forsenda loftslagsstefnu, þótt hún geri minna fyrir hátíðarræðurnar.

Ofninn í stofunni er enn heitur. Hitaveitan þarf ekki að útskýra árangur sinn með siðferðilegum yfirburðum. Orkuskiptum lauk á Íslandi fyrir mörgum áratugum. Því gleyma menn gjarnan.

Það væri framför ef næsti milljarður úr vasa almennings gæti sagt það sama.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila