
Dag Harald Claes, prófessor við Oslóarháskóla sem sérhæfir sig í orkumálum og stjórnmálum, segir ákvörðun Sameinuðu arabísku furstadæmanna um að yfirgefa OPEC ekki koma á óvart. Furstadæmin tilkynntu í gær að ríkið yfirgefi olíusamtökin eftir að hafa verið aðili frá árinu 1967. Claes segir furstadæmin hafa viljað þetta lengi þar sem ríkið vilji framleiða meira af olíu en OPEC hefur heimilað með framleiðslukvótum sínum. Þetta kemur fram í frétt E24.
Að hans Claes tengist ákvörðunin ekki beint átökunum við Íran eða lokun Hormuz-sundsins heldur fyrst og fremst framtíðarsýn ríkisins varðandi olíumarkaðinn.
Vill selja meira áður en eftirspurn minnkar
Claes segir furstadæmin telja að olíumarkaðurinn muni ekki halda áfram að vaxa til framtíðar og því vilji ríkið nýta olíulindir sínar á meðan eftirspurn er enn mikil. Furstadæmin hafi viljað auka framleiðslu sína í allt að fimm milljónir tunna á dag en Sádi-Arabía hafi staðið gegn því innan OPEC. Á síðustu árum hafa OPEC-ríkin ásamt Rússlandi haldið aftur af framleiðslu til að styðja við olíuverð á heimsmarkaði.
Samskipti við Sádi-Arabíu versnað
Claes segir samskipti furstadæmanna og Sádi-Arabíu hafa versnað á síðustu árum meðal annars vegna ólíkra hagsmuna ríkjanna í Jemen og víðar í Miðausturlöndum. Að hans mati vilja furstadæmin ekki lengur láta önnur ríki stjórna eigin olíuframleiðslu. Þrátt fyrir að furstadæmin vilji auka framleiðslu sína segir Claes að lokun Hormuz-sundsins geri útflutning erfiðari um þessar mundir.
Óttast áhrif á olíumarkaðinn
Sérfræðingar telja að brotthvarf furstadæmanna geti veiklað getu OPEC til að stjórna olíuverði til lengri tíma. Tom Erik Kristiansen hjá Pareto Securities segir ákvörðunina endurspegla aukna spennu innan olíusamtakanna og telur að hætta á verðstríði á olíumarkaði geti aukist.
Sameinuðu arabísku furstadæmin eru þriðji stærsti framleiðandinn innan OPEC+ á eftir Sádi-Arabíu og Rússlandi.
