
Metnaðarfull uppbygging vetnisknúinna almenningsvagna í Póllandi hefur lent í verulegum erfiðleikum vegna mikils eldsneytiskostnaðar og veikburða innviða samkvæmt nýrri skýrslu frá samtökunum CEE Bankwatch Network. Í skýrslunni kemur fram að mörg pólsk sveitarfélög hafi lagt mikla áherslu á vetnisvagna þar sem styrkjakerfi hafi oft greitt allt að 100% af kaupverði þeirra, á meðan rafmagnsvagnar fengu yfirleitt aðeins 60–80% stuðning. Þegar vagnarnir fóru hins vegar í notkun hafi komið í ljós að vetnið væri mun dýrara en raforka. Þetta segir í umfjöllun Euronews.
Reksturinn margfalt dýrari
Samkvæmt skýrslunni hafa mörg sveitarfélög nú snúið sér aftur að rafmagnsvögnum eftir að hafa staðið frammi fyrir háum kostnaði og skorti á vetnisstöðvum.
Borgin Rybnik greindi meðal annars frá því að rekstur vetnisvagna væri meira en þrefalt dýrari en dísilvagna og fjórfalt dýrari en tvinnvagna. Þá sýna útreikningar frá borginni Rzeszów að eldsneytiskostnaður yfir fimmtán ára tímabil gæti orðið hærri en kaupverð vagnanna sjálfra.
Í lok apríl höfðu pólsk sveitarfélög tekið í notkun eða samið um kaup á alls 247 vetnisvögnum. Af þeim eru 140 þegar í rekstri en 107 hafa verið pantaðir.
Fáar vetnisstöðvar í landinu
Þrátt fyrir miklar væntingar um vetnisvæðingu voru aðeins níu vetnisáfyllingarstöðvar starfandi í Póllandi í lok árs 2025, þrátt fyrir að markmið stjórnvalda hafi verið að þær yrðu 32 samkvæmt vetnisáætlun frá árinu 2021.
Á sama tíma eru yfir 12.500 hleðslustöðvar fyrir rafbíla starfandi í landinu.
Efast um að vetnið sé raunverulega „grænt“
Skýrslan dregur einnig í efa að vetnisknúnir vagnar geti talist raunverulega vistvænir þar sem meira en 97% vetnisins í Póllandi er framleitt úr jarðefnaeldsneyti.
Samtökin segja vagnana eingöngu skilgreinda sem „útblásturslausa“ vegna þess að þeir losa ekki mengun frá útblástursröri, þótt framleiðsla vetnisins sjálfs valdi mikilli losun.
Á sama tíma hafi rafmagnsvagnar tekið miklum framförum hvað varðar drægni, hleðsluinnviði og rekstrarkostnað.
Pólland hefur einnig verið að auka hlut endurnýjanlegrar orku í raforkukerfi sínu. Samkvæmt orkurannsóknarfyrirtækinu Ember kemur um 30% raforku landsins nú frá endurnýjanlegum orkugjöfum, þó kol standi enn undir um helmingi raforkuframleiðslunnar.
Hundruð milljóna evra úr ESB-sjóðum
Samkvæmt skýrslunni hafa verkefni tengd vetnisvögnum og vetnisstöðvum í Póllandi fengið yfir 120 milljónir evra í styrki frá Evrópusambandinu auk rúmlega sex milljóna evra í lánum.
Höfundur skýrslunnar, Diana Maciaga, segir að fjármunirnir hefðu betur nýst í lausnir sem væru þegar fullreyndar og skiluðu skýrari ávinningi fyrir loftslagið og samfélagið.
Þýskaland var fyrirmyndin
Þrátt fyrir stöðuna í Póllandi er Þýskaland nefnt sem dæmi um árangursríka uppbyggingu vetnisvagna. Þar eru nú yfir 600 vetnisknúnir almenningsvagnar í notkun og á næstunni bætast nítján nýir vagnar við flotann.
Pólski framleiðandinn Solaris Bus & Coach hefur afhent yfir 800 vetnisvagna víðs vegar um Evrópu, meðal annars til Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Bretlands og Hollands.
Samtökin Hydrogen Europe segja að erfiðleikar Póllands séu eðlilegir á fyrstu stigum nýrrar atvinnugreinar og telja að landið geti náð Þýskalandi með réttum hvötum og stuðningi frá Evrópusambandinu.
