Ríkisstjóri Massachusetts afnemur tímamörk á þungunarrofi

Maura Healey, ríkisstjóri Massachusetts, hefur undirritað lög sem afnema fyrri tímamörk á þungunarrofi í ríkinu. Með breytingunni verður læknum veitt aukið svigrúm til að framkvæma þungunarrof seint á meðgöngu án þess að eiga á hættu lagalegar afleiðingar samkvæmt fyrri takmörkunum. Þetta kemur fram í frétt Fox News.

Áður giltu almennt 24 vikna tímamörk í Massachusetts en undantekningar voru heimilar við ákveðnar aðstæður. Nýju lögin taka gildi eftir 90 daga.

Læknar fá aukið svigrúm

Lögin nefnast Prioritizing Patient Access to Care Act og fela meðal annars í sér að heilbrigðisstarfsfólk fær aukið svigrúm til að meta hvort framkvæma eigi þungunarrof síðar á meðgöngu.

Healey segir breytinguna réttlætanlega þar sem hún sé meðal annars ætluð konum og fjölskyldum sem standa frammi fyrir alvarlegum læknisfræðilegum vandamálum seint á meðgöngu. Þar geti verið um að ræða hættu fyrir heilsu móður eða banvæna greiningu hjá fóstri.

Hún sagði ákvarðanir um heilbrigðisþjónustu eiga að vera teknar af konum og fjölskyldum þeirra í samráði við lækna en ekki stjórnmálamenn.

10. ríkið án fastra tímamarka

Samkvæmt Fox News verður Massachusetts 10. bandaríska ríkið til að vera án fastra tímamarka miðað við lengd meðgöngu.

Alaska, Colorado, Maryland, Michigan, Minnesota, New Jersey, New Mexico, Oregon og Vermont eru einnig sögð vera án slíkra tímamarka auk Washington D.C.

Segir lögin skjöld gegn alríkisstjórninni

Healey setti lagabreytinguna jafnframt í samhengi við deiluna um þungunarrof í Bandaríkjunum eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi Roe gegn Wade úr gildi.

Hún lýsti lögunum sem eins konar skjöld gegn hugsanlegum aðgerðum Donalds Trump forseta, repúblikana á Bandaríkjaþingi eða Hæstaréttar sem gætu þrengt að aðgengi að þungunarrofi.

Healey hét því að þungunarrof yrði áfram löglegt og aðgengilegt í Massachusetts meðan hún gegndi embætti ríkisstjóra.

Harðlega gagnrýnt

Samtökin SBA Pro-Life America fordæmdu lagabreytinguna og segja hana ganga allt of langt. Marjorie Dannenfelser, forseti samtakanna, gagnrýndi sérstaklega að ekki verði lengur miðað við föst tímamörk á meðgöngu.

Hún hvatti repúblikana til að hverfa frá þeirri stefnu að einstök ríki ráði alfarið löggjöf um þungunarrof og kallaði eftir lágmarksreglum á landsvísu til verndar ófæddum börnum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila