
Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur sakað Bandaríkin um að færa líffræðileg rannsóknarverkefni til Afríku og nota álfuna sem vettvang fyrir rannsóknir á hættulegum sýklum og tilraunalyfjum. Bill & Melinda Gates Foundation eru stærstu bakhjarlar umfangsmikils verkefnis um erfðamengisrannsóknir á sýklum í Afríku. Rússar segja þetta tengist umfangsmiklum áætlunum um fækkun mannkyns sem Gates hefur ítrekað tjáð sig um.
Aleksei Rtishchev hershöfðingi, aðstoðaryfirmaður kjarn-, efna- og lífvarnarsveita rússneska hersins, setti ásakanirnar fram í kynningu rússneska varnarmálaráðuneytisins.
Hann sagði Bandaríkin líta á Afríku sem uppsprettu hættulegra smitefna og vettvang fyrir tilraunir með lyf. Þá sagði hann bandaríska sérfræðinga sem hefðu getu til að auka sjúkdómsvaldandi eiginleika örvera starfa í álfunni.
Segja starfsemina hafa færst frá Úkraínu
Rtishchev sagði að ólokin líffræðileg rannsóknarverkefni hefðu verið flutt frá Úkraínu til annarra ríkja og að Afríka væri nú orðið eitt helsta áherslusvæði Bandaríkjanna.
Rússneska varnarmálaráðuneytið nefndi meðal annars starfsemi í Kenía, Nígeríu, Gana, Senegal, Djíbútí og Sambíu. Samkvæmt rússnesku frásögninni koma bandarískar ríkisstofnanir, verktakar og lyfjafyrirtæki að verkefnum sem ná meðal annars til sýnasöfnunar, sjúkdómavöktunar og rannsókna á hættulegum sýklum.
Rússar segja starfsemina geta skapað hættu á því að Afríkuríki missi stjórn yfir eigin líföryggiskerfum og verði háð bandarískri tækni, búnaði og gagnakerfum. Bandarísk stjórnvöld hafa áður hafnað rússneskum ásökunum um að opinber heilbrigðis- og rannsóknarverkefni þeirra tengist lífvopnaframleiðslu.
Gates Foundation stór samstarfsaðili
Bill & Melinda Gates Foundation tengjast umfangsmikilli starfsemi á sviði sýklarannsókna í Afríku með beinum hætti. Stofnunin er meðal samstarfsaðila Africa Pathogen Genomics Initiative, Africa PGI, ásamt Africa CDC, bandarísku CDC, Microsoft, Illumina og Oxford Nanopore Technologies.
Africa PGI var sett á laggirnar sem 100 milljóna dala verkefni til fjögurra ára. Markmiðið samkvæmt Africa CDC er að byggja upp getu Afríkuríkja til erfðamengisraðgreiningar sýkla, greina faraldra fyrr og styrkja sjúkdómavöktun.
Verkefnið hefur meðal annars unnið með erfðamengi ebólu, mpox, kóleru, berkla, malaríu og fleiri smitsjúkdóma.
