
EFTA-ríkin, Ísland, Noregur, Liechtenstein og Sviss, hafa lokið samningaviðræðum við Víetnam um nýjan fríverslunarsamning. Samkomulagið náðist á ráðherrafundi EFTA sem haldinn var í Reykjavík 22. júní og hefur nú verið staðfest af öllum fimm ríkjunum.
Að sögn utanríkisráðuneytisins markar samningurinn mikilvægan áfanga í viðskiptasamskiptum EFTA-ríkjanna við eitt hraðast vaxandi hagkerfi Asíu.
Lokasamningurinn kláraður í Reykjavík
Í aðdraganda ráðherrafundarins funduðu samninganefndir EFTA-ríkjanna og Víetnams í heila viku í Reykjavík þar sem gengið var frá þeim atriðum sem eftir stóðu. Sú vinna lagði grunninn að endanlegu samkomulagi sem ráðherrar ríkjanna samþykktu í kjölfarið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir sérstaklega ánægjulegt að lokasamningalotan hafi farið fram á Íslandi og að samkomulagið hafi verið innsiglað á ráðherrafundi EFTA í Reykjavík.
Á að bæta markaðsaðgang íslenskra fyrirtækja
Samningurinn er umfangsmikill og tekur meðal annars til vöru- og þjónustuviðskipta, fjárfestinga, opinberra innkaupa, hugverkaréttinda og ákvæða um viðskipti og sjálfbæra þróun.
Honum er ætlað að bæta markaðsaðgang íslenskra fyrirtækja í Víetnam og skapa aukin tækifæri til útflutnings, þjónustuviðskipta og fjárfestinga.
Viðskipti nema rúmum tíu milljörðum króna
Vöruviðskipti Íslands og Víetnams námu rúmum tíu milljörðum króna á síðasta ári. Útflutningur frá Íslandi nam um 452 milljónum króna og var að mestu leyti sjávarafurðir, einkum makríll.
Innflutningur frá Víetnam nam hins vegar tæplega 9,8 milljörðum króna og samanstóð aðallega af rafeindabúnaði, skófatnaði og fatnaði.
Stefnt að undirritun í haust
Fríverslunarviðræður EFTA og Víetnams voru teknar upp á ný í september 2025 eftir að hafa að mestu legið niðri frá árinu 2018.
Stefnt er að því að samningurinn verði undirritaður í haust. Að því loknu þarf hann að hljóta fullgildingu í hverju aðildarríki áður en hann tekur formlega gildi.
