
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Atla Lilliendahl, framkvæmdastjóra í síðdegisútvarpinu í dag, um samning Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur en Atli bjó í áratugi á Grænlandi og er nýkominn þaðan nú, eftir stutta heimsókn. Atli telur samninginn góðan fyrir Grænlendinga og segir hann skapa skýran öryggisramma, opna leið fyrir umfangsmiklar fjárfestingar og styrkja samningsstöðu landsins. Hann telur jafnframt að Danir missi veruleg völd með nýju fyrirkomulagi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin tryggja varnir og öryggi
Arnþrúður lagði áherslu á að varanleg viðvera Bandaríkjanna skipti miklu máli bæði hernaðarlega og vegna þeirra fjárfestinga sem fram undan eru. Bandaríkjamenn þurfi að geta treyst því að þeir verði á Grænlandi til langs tíma áður en ráðist verði í mikla uppbyggingu.
Atli sagði samninginn mjög skýran. Bandaríkin fari með varnir og öryggismál og fái jafnframt heimild til að meta hvort fjárfestingar annarra aðila geti ógnað öryggi þeirra eða starfsemi á Grænlandi. Bandaríkin séu nú þegar byrjaðir á framkvæmdum á svæðinu.
Arnþrúður taldi samkomulagið veita Grænlendingum mikið öryggi eftir langvarandi óvissu um framtíð landsins.
Danir missa veruleg völd
Atli sagði Dani hafa lagt mikla áherslu á að komast í gegnum samninginn með reisn en þeir hefðu engu að síður misst veruleg völd.
Arnþrúður benti á að staða Dana hefði verið erfið. Þeir hefðu staðið á milli Grænlendinga, sem vildu ekki ganga í Evrópusambandið, og forystu ESB sem hefði viljað færa Grænland nær Evrópusambandinu. Á sama tíma hafi Danmörk farið með utanríkis- og varnarmál Grænlands.
Nýi samningurinn breytir þeirri stöðu verulega með því að færa Bandaríkjunum mjög sterka stöðu í öllum málum sem falla undir varnir og öryggi.
Fjárfestingar geta fallið undir öryggismál
Áhrif samningsins ná langt út fyrir hernaðaruppbyggingu. Atli sagði Bandaríkjamenn fá að fjárfesta og fara í framkvæmdir og hafi fullt ákvörðunarvald um fjárfestingar annarra aðila, ef þær snerta öryggishagsmuni.
Arnþrúður spurði hvort þetta gæti einnig átt við um fjárfestingar í málmum og öðrum auðlindum. Atli sagði svo vera og að námuvinnsla gæti verið flokkuð sem nauðsynleg vegna öryggis landsins.
Þetta þýðir meðal annars að fyrirhugaðar fjárfestingar Evrópusambandsins á Grænlandi koma til skoðunar Bandaríkjamanna áður en þær komast til framkvæmda ef sú væri ætlunin.
Mikil uppbygging getur styrkt efnahag Grænlands
Mikill undirbúningur er þegar í gangi vegna námuvinnslu, vatnsútflutnings og annarra verkefna. Atli sagði búast við að margt færi hratt af stað, eftir undirritun samningsins eftir að framkvæmdir og fjárfestingar höfðu verið settar á bið meðan óvissa ríkti.
Arnþrúður spurði hvort slík uppbygging gæti styrkt efnahag Grænlands svo mikið að landið ætti auðveldara með að standa sjálfstætt.
Atli sagði verulegan fjárhagslegan stuðning nauðsynlegan ef Grænlendingar ætluðu að taka yfir þau verkefni sem Danir sjá nú um, þar á meðal lögreglu og dómskerfi. Áhugi Bandaríkjanna hefði þó þegar aukið sjálfstraust Grænlendinga og sýnt þeim að þeir ættu fleiri möguleika en áður.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
