
Fabien Mandon, æðsti yfirmaður franska heraflans, hefur staðfest að samstarf Frakklands og Þýskalands um þróun nýrrar kynslóðar skriðdreka hafi farið út um þúfur. Hann segir Þjóðverja hafa dregið sig út úr verkefninu eftir margra ára tafir, deilur milli vopnaframleiðenda og pólitískan ágreining ríkjanna. Þetta er annað stóra sameiginlega vopnaþróunarverkefnið sem fer út um þúfur hjá ríkjunum á fáeinum mánuðum. Þetta segir í frétt Politico.
Mandon greindi frá stöðu málsins þegar hann kom fyrir þingnefnd í Frakklandi á fimmtudag til að ræða fyrirhuguð útgjöld til varnarmála á næsta ári.
Verkefnið, sem nefnist Main Combat Ground System (MGCS), átti að leiða til þróunar nýs evrópsks skriðdreka sem gæti tekið við af þeim skriðdrekum sem franski og þýski herinn nota nú.
„Niðurstaðan er ekki góð. Við höfðum vonast til að smíða skriðdreka framtíðarinnar í samstarfi við Þjóðverja en því miður verðum við að viðurkenna að Þjóðverjar hafa dregið sig út úr verkefninu,“ sagði Mandon.
Margra ára tafir og deilur
MGCS-verkefnið hefur um árabil verið eitt helsta samstarfsverkefni Frakklands og Þýskalands á sviði hergagnaframleiðslu.
Að verkefninu hafa komið fyrirtækin KNDS France, KNDS Germany, Rheinmetall og Thales.
Markmiðið var að þróa sameiginlegt vopnakerfi fyrir landhernað sem gæti nýst herjum beggja ríkja og styrkt evrópska hergagnaframleiðslu.
Framgangur verkefnisins hefur hins vegar einkennst af síendurteknum töfum, ágreiningi milli fyrirtækjanna um verkaskiptingu og pólitískri togstreitu milli Parísar og Berlínar.
Politico greindi þegar frá því í júní að sífellt minni líkur væru á að verkefnið næði fram að ganga í þeirri mynd sem upphaflega var ráðgerð.
Annað stóra varnarsamstarfið sem fer út um þúfur
Staðfesting Mandon kemur aðeins nokkrum mánuðum eftir að annað umfangsmikið samstarfsverkefni Frakklands og Þýskalands í hergagnaframleiðslu rann út í sandinn.
Þar var um að ræða Future Combat Air System (FCAS), verkefni um þróun nýrrar kynslóðar orrustuflugvéla og tengdra hernaðarkerfa.
Þýsk stjórnvöld höfðu áður lýst því yfir að því samstarfi væri lokið.
Þessi tvö verkefni áttu að verða mikilvægir þættir í uppbyggingu evrópskrar varnargetu og draga úr þörfinni fyrir kaup á hergögnum frá öðrum ríkjum.
Endalok þeirra undirstrika þann vanda sem Frakkland og Þýskaland hafa glímt við þegar kemur að sameiginlegri þróun og framleiðslu stórra hergagnakerfa.
Segir samstarfið ekki hafa verið til einskis
Þrátt fyrir að viðurkenna að samstarfið hafi ekki skilað tilætluðum árangri vildi Mandon ekki lýsa MGCS-verkefninu sem algjörum mistökum.
Þegar þingmaður Þjóðfylkingarinnar spurði hann um niðurstöðuna sagði Mandon að samstarfið hefði engu að síður skilað mikilvægri undirbúningsvinnu.
„Þetta eru ekki algjör mistök. Þetta er mikilvæg ákvörðun Þýskalands en landherir okkar hafa unnið saman í nokkur ár að því að skilgreina hvernig framtíðarskriðdreki eigi að vera,“ sagði hann.
Mandon sagði að sú vinna hefði ekki verið tímasóun, þótt niðurstaðan væri óhagstæð fyrir hergagnaiðnaðinn.
„Frá sjónarhóli iðnaðarins eru þetta hins vegar ekki góðar fréttir,“ bætti hann við.
Þýskur embættismaður á sviði varnarmála vildi ekki tjá sig um ummæli franska hershöfðingjans.
Ekki liggur fyrir hvort ríkin hyggist þróa nýja skriðdreka hvort í sínu lagi eða hvort önnur samstarfsverkefni komi í stað MGCS.
