Samtök hægri aðgerðarsinna höfða mál gegn framkvæmdastjórn ESB

Aðstandendur herferðarinnar Save Europe Act, samtök hægri aðgerðarsinna, hyggjast höfða mál gegn framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eftir að henni var synjað um skráningu evrópsks borgaraframtaks sem meðal annars kallar eftir tímabundinni stöðvun lagalegra innflytjendaleiða og brottvísun innflytjenda sem teljast ekki hafa aðlagast samfélaginu. Þetta kemur fram í frétt Euronews.

Framkvæmdastjórnin hafnaði skráningu framtaksins á þeim grundvelli að tillögurnar fælu í sér mismunun á grundvelli kynþáttar og þjóðernisuppruna og væru augljóslega andstæð grunngildum Evrópusambandsins.

Segja framkvæmdastjórnina brjóta lög

Martin Sellner, austurrískur aðgerðarsinni og talsmaður svokallaðrar endurflutningsstefnu (remigration), segir framkvæmdastjórnina hafa brotið gegn Evrópurétti með því að koma í veg fyrir að borgarar gætu lagt fram tillögur sínar.

Hann segir lögfræðinga herferðarinnar stefna að því að leggja málið fyrir dómstóla strax í næstu viku.

Vilja stöðva fjölskyldusameiningar

Samkvæmt tillögunum átti meðal annars að stöðva tímabundið innflytjendaleiðir fyrir fólk utan Vesturlanda, þar á meðal námsleyfi og fjölskyldusameiningar.

Jafnframt var lagt til að ekki aðeins ólöglegum innflytjendum yrði vísað úr Evrópusambandinu heldur einnig ríkisborgurum þriðju ríkja sem dvelja þar löglega en teljast „ekki hafa aðlagast“ eða séu taldir valda aðildarríkjum verulegum menningarlegum eða fjárhagslegum byrðum.

Framkvæmdastjórnin hafnaði skráningu

Framkvæmdastjórnin sagði tillögurnar byggjast á uppruna, menningu eða siðmenningu fólks fremur en einstaklingsbundnu mati, eins og Evrópuréttur geri ráð fyrir. Af þeim sökum væri ekki unnt að skrá borgaraframtakið.

Ef evrópskt borgaraframtak er skráð og nær einni milljón undirskrifta frá að minnsta kosti sjö aðildarríkjum þarf framkvæmdastjórnin að taka það formlega til umfjöllunar og gera grein fyrir því hvort og hvernig hún hyggst bregðast við. Evrópuþingið þarf jafnframt að halda opna málstofu með aðstandendum framtaksins og getur í framhaldinu greitt atkvæði um ályktun.

Hafa safnað hundruðum þúsunda undirskrifta

Aðstandendur herferðarinnar segja að þeir hafi þegar safnað tæplega 600.000 undirskriftum utan hins formlega ferlis. Í síðustu viku efndu þeir jafnframt til mótmæla fyrir utan Evrópuþingið í Brussel og kröfðust þess að framtakið yrði skráð.

Cristina Guarda, þingmaður Græningja á Evrópuþinginu, fagnaði hins vegar ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar og sagði að um væri að ræða „hatursáróður“ sem samtökin stæðu að. Hún og aðrir þingmenn efndu til gagnmótmæla á sama tíma og mótmæli aðstandenda herferðarinnar fóru fram.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila