Sannkölluð bolluveisla í Bakarameistaranum með fjölbreyttu bolluúrvali

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigrúnu Sól Vigfúsdóttur bakara og konditor hjá Bakarameistaranum og Sögu Líf Sigþórsdóttur sölustjóra Bakarameistarans í Síðdegisútvarpinu um bolludaginn og hið mikla bolluframboð sem nú er komið í sölu í öllum verslunum Bakarameistarans. Fram kom að eftirspurn hefði aukist ár frá ári og að undirbúningur fyrir daginn hæfist löngu fyrir sjálfan bolludaginn þar sem bæði heimili og fyrirtæki tryggðu sér pantanir tímanlega. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Einn stærsti söludagur ársins

Í umræðunni kom fram að bolludagurinn væri orðinn einn stærsti söludagur ársins hjá bakaríum þar sem neytendur væru farnir að gera sér dagamun yfir lengri tíma í kringum daginn fremur en aðeins einn dag. Fólk safnist saman á vinnustöðum og heimilum og haldi bollusamsæti þar sem fjölbreytni skipti miklu máli. Fyrirspurnir um framboð og pantanir hefjist snemma og margir vilji tryggja sér ákveðnar tegundir áður en úrvalið minnkar. Hægt er að panta á bakarameistarinn.is

Nýjar bragðsamsetningar vekja athygli- Sérstök Valentínusarbolla

Sigrún Sól lýsti því að nýjungar væru mikilvægur þáttur í árlegri þróun bolluframboðsins. Á þessu ári bætist við appelsínu- og núggatbolla sem sameinar sítruskeim og súkkulaðifyllingu ásamt ristuðum heslihnetum sem gefa skemmtilega áferð. Einnig verði sérstök Valentínusbolla í boði með marengs, vanillukremi og berjakombói. Samhliða þessum nýjungum haldi hefðbundnar rjómabollur með súkkulaði og sultu áfram sterkri stöðu enda vilji stór hluti viðskiptavina halda í hið sígilda bragð.

Pantanir og aðgengi að bollum

Þær vöktu athygli á að hægt sé að leggja inn pantanir á heimasíðu Bakarameistarans ( bakarameistarinn.is) auk þess sem verslanir taki við pöntunum á staðnum og símleiðis á opnunartíma. Áhersla sé lögð á að viðskiptavinir séu tímanlega þar sem álag aukist hratt dagana fyrir bolludag og vinsælustu tegundir seljist oft upp. Fyrirtækið bjóði bæði minni pantanir fyrir heimili og stærri pakkalausnir fyrir vinnustaði og hópa.

Sölustaðir um allt höfuðborgarsvæðið

Bollurnar verða í sölu í öllum verslunum Bakarameistarans á höfuðborgarsvæðinu sem eru 9 talsins. Sölustaðirnir eru í Suðurveri, Mjódd, Glæsibæ, Húsgagnahöllinni á Höfða, Smáratorgi, Austurveri, Flatahrauni í Hafnarfirði, Spönginni og í Holtagörðum þar sem einnig fer fram hluti af framleiðslu. Með þessari dreifingu sé markmiðið að tryggja stuttan aðgang fyrir viðskiptavini óháð búsetu og að ferskar vörur berist daglega í hverja verslun.

Klassíkin heldur velli

Þær sögðu að þrátt fyrir nýjar tegundir sem mörgum þyki gaman að prófa að hefðbundna rjómabollan væri áfram sú tegund sem flestir leiti í. Margir vilji fá sömu bragðupplifun ár eftir ár og telji hana ómissandi hluta bolludagsins. Þannig fari nýjungar og hefðir saman þar sem breidd úrvalsins tryggi að bæði ævintýragjarnir neytendur og þeir sem vilji halda í hefðirnar finni eitthvað við sitt hæfi. Vert sé að minna að að nú verði líka boðið upp á gerbollur sem talsverð eftirspurn sé eftir.

Hlustendur leystir út með bollum

Í þættinum var hlustendum gefið tækifæri á að hringja inn og fá bollur í boði Bakarameistarans. Það er morgunljóst að mörgum er farið að hlakka til bolludagsins svo mjög að einn hlustandinn sem hringdi inn greindi frá því að hann hefði hugsað um bollur alveg frá því hann hafði vaknað um morguninn. Þeir fjölmörgu sem hringdu inn fengu veglegan bollukassa að eigin vali með 15 stórum gómsætum rjómabollum.

Hægt er að panta bollur í síma 533-3000 eða senda í gegnum heimasíðuna bakarameistarinn.is

Hér að neðan má sjá í flettimyndaröð úrvalið af þeim bollum sem Bakarameistarinn býður upp á.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila