Sigmundur Davíð: Einn stór blekkingarleikur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í Síðdegisútvarpinu í dag um stöðu þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB og umræðu um aðildarviðræður Íslands við sambandið. Sigmundur sagði að framsetning stjórnvalda á málinu byggðist á röngum forsendum og að verið væri að byggja upp það sem hann kallaði einn stóran blekkingarleik um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og eðli aðildarferlisins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Segir Ísland ekki lengur umsóknarríki

Sigmundur sagði að fullyrðingar, um að Ísland sé enn umsóknarríki að Evrópusambandinu, standist ekki. Hann rifjaði upp að aðildarviðræðurnar sem hófust í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar hafi verið stöðvaðar árið 2014 með formlegum hætti.

Hann sagðist í kjölfarið sjálfur hafa farið til Brussel og rætt stöðu málsins við Jean-Claude Juncker og Donald Tusk sem þá gegndu lykilhlutverkum í forystu Evrópusambandsins. Í þeim viðræðum hafi verið staðfest að Ísland væri ekki lengur í umsóknarferli. Eftir það hafi Evrópusambandið uppfært opinberar upplýsingar sínar sem staðfestu að Ísland sé ekki lengur á lista sambandsins yfir umsóknarríki. Sigmundur benti einnig á að Ísland hafi ekki verið með þjóðfána á fundum með leiðtogum Evrópusambandsins þar sem umsóknarríki sitja annars við borðið. Tyrkland hafi þar verið með sinn fána en Ísland ekki, sem endurspegli að landið sé ekki talið umsóknarríki.

Segir stjórnvöld byggja umræðuna á rangri mynd

Sigmundur sagði að stjórnvöld reyndu nú að gefa í skyn, að hægt sé að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Að hans mati sé það rangt og byggi á rangri lýsingu á stöðu Íslands. Hann sagði að slíkt orðalag sé notað til að skapa þá mynd að Ísland geti einfaldlega farið aftur inn í ferlið, án þess að hefja nýja umsókn eða fá samþykki annarra ríkja sambandsins.

Aðildarviðræður snúist um aðlögun að reglum ESB

Sigmundur lagði einnig áherslu á að það sem kallað er aðildarviðræður séu ekki hefðbundnar samningaviðræður. Að hans sögn snúist ferlið um að umsóknarríki aðlagi löggjöf sína, stjórnsýslu og stofnanir að reglum Evrópusambandsins. Hann sagði að aðlögunin hefjist strax, á meðan viðræður standi yfir, og ríkið þurfi þá að breyta lögum sínum og byggja upp stjórnsýslu sem uppfyllir kröfur sambandsins. Sigmundur sagði að sú staðreynd væri sjaldan útskýrð í opinberri umræðu og að það væri hluti af þeirri framsetningu sem hann lýsti sem blekkingarleik.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila