Sigmundur: Gagnrýnir RÚV fyrir skort á hlutleysi í pólitískri umræðu

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í Síðdegisútvarpinu um umræðu fjölmiðla um Evrópusambandsmálið. Í viðtalinu vísaði Arnþrúður til upplýsinga frá stjórnarmanni RUV um að Ríkisútvarpið hafi fengið styrki úr live-verkefnasjóðum Evrópusambandsins og spurði hvort slíkt gæti haft áhrif á framsetningu ESB málsins hjá stofnuninni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

RÚV á styrkjum úr sjóðum ESB

Vísað var til upplýsinga sem komið hafa fram um að Ríkisútvarpið hafi fengið styrki úr verkefnasjóðum Evrópusambandsins, meðal annars, úr svokölluðum LIFE-sjóði sem tengist loftslags- og umhverfismálum. Slíkt gæti vakið spurningar um hvernig opinber fjölmiðill eins og Ríkisútvarpið fjalli um ESB í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Ríkisútvarpið gagnrýnt fyrir skort á hlutleysi

Sigmundur sagði að hann hefði lengi gagnrýnt Ríkisútvarpið, fyrir skort á hlutleysi í pólitískri umfjöllun. Hann sagði mikilvægt að fjölmiðlar tryggi að ólík sjónarmið fái að heyrast þegar stór mál væru til umræðu, sérstaklega þegar þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið væri framundan.

Möguleg gylliboð frá Evrópusambandinu

Sigmundur var spurður hvort Evrópusambandið gæti boðið Íslandi sérstakt gylliboð, til að lokka landið inn í ESB. Sigmundur sagði að slíkt væri ekki óhugsandi í ljósi þess að Evrópusambandið hafi pólitískan áhuga á að fá vel stætt ríki til liðs við sig. Hann sagði mikilvægt að ræða opinskátt um alla hagsmuni sem gætu verið í húfi áður en þjóðin tekur afstöðu til framhalds málsins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila