Sjáið fyndið myndskeið Elon Musks afhjúpa lygar Dr. Fauci um áhrif og öryggi Covid-bóluefna


Elon Musk birti á þriðjudag myndband á X-inu með afneitun lyfjarisanna á skaðlegum áhrifum mRNA bóluefna og árangursleysi og þeirra hópa sem tóku þátt í því að þvinga sprautunni á fólk um allan heim.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Must gagnrýnir tilraunabóluefnin gegn Covid-19 eða ríkisrekna fjölmiðla, þar á meðal Twitter, sem höfðu samráð við valdhafana um að ritskoða sannleikann. Elon Musk sagði áður á Twitter (sjá að neðan), að honum fyndist hann vera að deyja eftir að hafa tekið aðra sprautuna með mRNA bóluefninu.

Musk birti eftirfarandi myndband (sjá að neðan), þar sem hann afhjúpar minnkandi virkni bóluefnis í tímaröð, hróp eftir örvunarsprautum, fregnir af bóluefnatengdum meiðslum og alvarlegum heilsufarsvandamálum í kjölfarið og að lokum milljarða dollara hagnað stóru lyfjafyrirtækjanna og spyr: „Hefurðu heyrt þessar (fals)upplýsingar?“ Hann skrifar „dis information“ í staðinn fyrir „this information“ en orðið „disinformation“ þýðir falsupplýsingar.

Örvæntingarfullir fylgjendur „vísindanna“ reyndu að rannsaka Musk í samfélagsmiðlunum, sem eru ekki sýndar á X-inu eins og er. Sumir reyndu að halda því fram að stökkbreytingar í veirunni dragi úr virkni stungulyfsins, en það veiti engu að síður „vernd gegn alvarlegum veikindum eða dauða.“ Sjá hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila