Sjálfstætt Grænland myndi gera varnarsamning við Bandaríkin

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Atla Lilliendahl, framkvæmdastjóra sem bjó á Grænlandi í yfir 30 ár í síðdegisútvarpinu um framtíðarstöðu Grænlands og samskiptin við Bandaríkin og Evrópu. Atli sagði að fengju Grænlendingar yfirráð yfir eigin utanríkismálum myndu þeir gera varnarsamning beint við Bandaríkin. Hann sagði Evrópu óttast slíkan samning við sjálfstætt Grænland. Ursúla von der Leyen hefur boðið Grænlendingum stórfé ef þeir ganga í ESB og ætlar hún að mæta til Grænlands 6. september ásamt Mette Frederiksen forsætisráðherra. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Arnþrúður spurði Atla hvort Grænlendingar gætu samið beint við Bandaríkin um fyrirkomulag sem þeir gætu sætt sig við. „Já, ég efast ekkert um það,“ svaraði Atli og sagði að fengju Grænlendingar að ráða eigin utanríkismálum myndu þeir gera varnarsamning beint við Bandaríkin.

Atli sagði möguleikann á slíkum samningi vera eitt af því sem Evrópa óttaðist. Bandaríkin gætu þá samið beint við sjálfstætt Grænland án þess að Danir færu með utanríkismál landsins. Aðspurður sagði hann Dani einnig óttast að Grænlendingar gætu gert slíkan samning. Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi væri Ursúla von der Leyen og Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur búnar að boða komu sína til Grænlands í lok næstu viku og væri nú þegar búið að tilkynna Grænlendingum að þeir fengju stórfé ef þeir féllust á að ganga í Evrópusambandið.

Varnir Grænlands vekja spurningar

Framtíð varnarmála Grænlands tengdist jafnframt umræðunni um aukin áhrif Evrópu þar í landi. Arnþrúður spurði hvernig Evrópa gæti tryggt varnir Grænlands þegar hvorki Danir né Evrópa hefðu hernaðargetu til þess.

Atli tók undir efasemdir um hvernig slíkt fyrirkomulag ætti að ganga upp. Hann benti á að enginn sameiginlegur Evrópuher væri til og gagnrýndi fyrirheit um aðgerðir sem ættu ekki að koma til framkvæmda fyrr en 2028. Hann sagði loforðin ófjármögnuð og Grænlendinga hafa áður brennt sig á fyrirheitum sem ekki hefðu verið efnd.

Beinn varnarsamningur við Bandaríkin gæti því orðið raunhæfur kostur fyrir sjálfstætt Grænland samkvæmt Atla. Slíkur samningur myndi jafnframt breyta stöðu Dana og Evrópu gagnvart landinu verulega.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila