
Heimsendaspámaðurinn John Kerry segir að draga verði úr „losun” frá landbúnaðinum. Það hefur vakið mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum.
Fox news greinir frá: John Kerry, fv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sætir harðri gagnrýni á samfélagsmiðlum fyrir yfirlýsingar sem hann lét falla á „AIM for Climate Summit.“
Kennir bændum um „loftslagskreppuna”
Kerry réðst á „losunina” frá landbúnaðinum:
„Ég neita að kalla það loftslagsbreytingar. Þetta eru ekki breytingar. Þetta er kreppa. Margir hafa ekki hugmynd um að landbúnaður leggi til um 33% af allri losun í heiminum, allt eftir því hvernig þú reiknar út. Við getum ekki náð nettó núlli – við náum þessu verki ekki – nema landbúnaðurinn sé sé í miðjunni sem hluti af lausninni.”
Loftslagskreppan stafar af „fjölgun mannkyns”
John Kerry útskýrir að hann vilji sjá nýjungar í landbúnaði sem lausn. Kerry meinar, að það sé ekki hægt að takast á við loftslagsbreytingar nema að fyrst sé tekið á „losun” landbúnaðarins. Síðan fullyrðir hann, að aukinn íbúafjöldi á jörðinni muni valda því, að matvælaframleiðsla landbúnaðarins muni auka hitastigið um hálfa gráðu.
„Það er einfaldlega ekki hægt að halda áfram að hita plánetuna, á sama tíma og ætlast er til að hægt sé að fæða hana. Það virkar ekki. Þannig að við verðum að draga úr losun frá matvælakerfinu til að ná 1,5 gráðu markmiðinu.”
Dæmi um viðbrögð á samfélagsmiðlum
Ummæli John Kerry hafa vakið mikla reiði á samfélagsmiðlum og meðal ýmissa repúblikanskra stjórnmálamanna. Mary Miller, þingkona repúblikana skrifar á Twitter (sjá að neðan):
Hræsnari sem vill gera bændur gjaldþrota
Ted Cruz tístir (sjá að neðan):
„Hér er ekkert að sjá. Aðeins demókratískir hræsnarar sem vilja gera alla bændur gjaldþrota í Bandaríkjunum.”
Sjúkur skíthæll
Chip Roy, þingmaður repúblikana tístir (sjá að neðan):
„Þetta eru sjúkir skíthælar. Ég setti lög til að afgreiða þennan trúð. En það mun ekki virka nema repúblikanar í heild sinni ákveði að berjast í stað þess að halla sér aftur á bak meðan sjálft frelsið sem þeir berjast fyrir er undir árás.”
Ákall um þjóðarmorð
Jesse Kelly heldur því fram ,að það sé þjóðarmorð, þegar heimsendaspámenn ráðast á matvælakerfið (sjá að neðan):
„Þetta er ákall um þjóðarmorð. Það á að nefna hlutina réttum nöfnum. John Kerry er brjálaður þjóðarmorðingi og það ætti að meðhöndla hann sem slíkan.”
