
Júlíus Valsson skrifar:
Það getur verið mjög erfitt fyrir okkur leikmenn að átta okkur á skammtafræði. Þar er nefnilega ekki á vísan að róa. Flestir vilja að sá heimur sem við lifum og hrærumst í sé þekktur, og sæmilega stöðugur og helst fyrirsjáanlegur. Einstein hélt því t.d. fram að heimurinn væri án tilviljana. Allt væri niðurnjörvað í lögmál og formúlurm náttúrunnar. Þetta er auðvitað óskhyggja. Raunveruleikinn er annar.
„Þegar ég heyri kött Schrödingers mjálma gríp ég til byssunnar,“ er haft eftir hinum kunna eðlisfræðingi Stephen Hawking*.

Kenningin
Austurríski eðlisfræðingurinn, hugsuðurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Erwin Rudolf Josef Alexander Schrödinger setti fram þá undarlegu kenningu að ef líf kattar í lokuðum kassa væri undir því komið hvort ákveðin geislavirk eind með vissan helmingunartíma klofnaði eða klofnaði ekki á tilsettum tíma, þá væri ógjörningur að vita fyrirfram (þ.e. áður en gáð er í kassann) hvort kötturinn væri lífs eða liðinn. Hið undarlega er að skv. kenningunni gæti kötturinn verið dauður, sprelllifandi eða hálfdauður. Ekki nóg með það, kötturinn gæti verið allt þetta á sama tíma!
Í gildi eða ekki í gildi?
Ráðherrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur virðast gera sér fulla grein fyrir þessu nytsama lögmáli skammtafræðinnar. Gömul umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu, sem reyndar var dregin til baka árið 2015, getur þannig í þeirra huga verið í fullu gildi, en hún getur einnig ekki verið í gildi eða verið að einhverju leyti í gildi, allt á sama tíma!
Bæði gengið í ESB og ekki gengið í það á sama tíma
Með þessu sama hugarfari getur Ísland gengið í ESB, ekki gengið í ESB eða hvort tveggja í senn. Ríkisstjórnin getur bjargað heimilunum og á sama tíma ekki bjargað þeim. Það er hægt að fara eftir tilmælum Landskjörstjórnar, fara ekki eftir tilmælum Landskjörstjórnar á sama tíma eða blanda þessu saman á dásamlegan, heimskulegan hátt.
Ríkisstjórnin fylgir því að fullu lögmálum skammtafræðinnar. Það er því ekki á vísan að róa. Allt er mögulegt á sama tíma varðandi umsóknina að hennar mati eða þar til einhver opnar kassann, þ.e. í þessu tilviki „kíkir í pakkann“.
*Stephen Hawking var þarna reyndar að gera grín að ljóðskáldi nasista, Hanns Johst, og fyrstu útgáfu kenningar Schrödingers, þar sem kötturinn var drepinn með byssu.


