
Slysum og meiðslum barna í tengslum við rafhlaupahjól fjölgaði meira en fimmtánfalt á nokkrum árum í Bretlandi. Vísindamenn telja þróunina vera vaxandi lýðheilsuvandamál og kalla eftir skýrari reglum um notkun rafhlaupahjóla. Þetta kemur fram í umfjöllum Euronews.
Niðurstöðurnar byggja á rannsókn á 477 börnum sem leituðu á þrjár stórar bráðamóttökur barna í Bretlandi frá ársbyrjun 2019 til loka árs 2024. Tilfellin voru færri en 10 árið 2019 en voru orðin nærri 150 árið 2024.
Höfuðáverkar algengir
Í 95% tilfella var það ökumaður rafhlaupahjólsins sem slasaðist en í 5% tilfella varð gangandi vegfarandi fyrir meiðslum. Fall af rafhlaupahjóli olli 75% slysanna og tæplega 12% urðu við árekstur við ökutæki. Um fjórðungur barnanna hlaut höfuðáverka og tæplega fimmtungur áverka í andliti.
Þrátt fyrir það var greint frá hjálmanotkun í innan við 2% tilfella.
Meiðslin voru í mörgum tilfellum það alvarleg að frekari meðferðar var þörf. Um 65% barnanna þurftu að fara í myndgreiningu, 13,5% voru lögð inn á sjúkrahús og 7% þurftu að gangast undir aðgerð.
Flest slysin á einkareknum rafhlaupahjólum
Meðalaldur barnanna var 12 ár og tæplega tveir af hverjum þremur voru drengir. Um 80% slysanna tengdust rafhlaupahjólum í einkaeigu en ekki leiguhjólum. Rannsóknin sýndi jafnframt að 74% barnanna sem slösuðust bjuggu á svæðum þar sem félagsleg og efnahagsleg staða íbúa var hvað verst.
Vísindamenn telja börn og unglinga sérstaklega viðkvæman hóp þar sem þau hafi takmarkaða reynslu í umferðinni og séu líklegri til áhættuhegðunar.
Kalla eftir hertum reglum
Rannsakendur vilja að stjórnvöld endurskoði löggjöf um rafhlaupahjól og að öryggisfræðsla verði aukin. Meðal þeirra úrræða sem nefnd eru eru hraðatakmarkanir á hjólunum og skylda til hjálmanotkunar. Þeir telja einnig að seljendur rafhlaupahjóla eigi að upplýsa kaupendur með skýrum hætti um gildandi lög og reglur.
Niðurstöðurnar koma fram á sama tíma og stjórnvöld víða í Evrópu hafa hert reglur um rafhlaupahjól. París hefur nýlega hert reglur, Prag fjarlægði sameiginleg rafhlaupahjól af götum borgarinnar í janúar og Brussel hyggst gera slíkt hið sama í janúar á næsta ári.
