Spá Guðrúnar: Hildur Björnsdóttir í borgarstjórastólinn og Borgarlínan stöðvuð

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, miðil og heilara í Síðdegisútvarpinu í dag þar sem hún setti fram spár um helstu viðburði á næstu vikum og jafnframt um komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Í spánni sagði Guðrún Kristín að miklar breytingar verði í borgarstjórn og að Sjálfstæðisflokkurinn nái borgarstjórastólnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Segir Hildi Björnsdóttur verða borgarstjóra

Guðrún sagði að Sjálfstæðisflokkurinn vinni borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík og að Hildur Björnsdóttir verði borgarstjóri. Hún sagði jafnframt að mjótt verði á mununum milli flokka og að uppstokkun verði í borgarstjórninni.

Í þættinum var Guðrún Kristín spurð um gengi annarra flokka og nefndi Guðrún Kristín að Björg Magnúsdóttir, sem leiði Viðreisn í borginni nái inn, Samfylkingunni muni ganga vel en það komi eitthvað upp í sambandi við oddvitann Pétur Marteinsson, þá muni Miðflokkur ná inn mönnum, Okkar borg – þvert á flokka nái inn og Sanna Magdalena Mörtudóttir úr Vinstrinu verði meðal þeirra sem nái inn í borgarstjórn. Pítarar muni alveg hverfa og sömuleiðis Sósíalistaflokkurinn.

Borgarlínan verður stöðvuð

Í umræðunni sagði Guðrún Kristín að framkvæmdir við Borgarlínu verði stöðvaðar í þeirri mynd sem nú er áformuð. Hún sagði jafnframt að breytingar verði gerðar á samgöngustefnu borgarinnar þar sem aukin áhersla verði lögð á eðlilega bílaumferð og bílastæði í Reykjavík.

Fyrir þá sem vilja panta einkatíma hjá Guðrúnu má smella hér til þess að panta tíma á Noona appinu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila