Sprengja í ruslatunnu varð rússneskum kafbátaforingja að bana

Rússneskur kafbátaforingi lést þegar sprengja sem komið hafði verið fyrir í ruslatunnu sprakk í Sevastopol á Krímskaga í morgun. Rússneska öryggisþjónustan FSB segir árásina hafa verið framkvæmda að undirlagi úkraínsku leyniþjónustunnar og hefur handtekið konu vegna málsins. Euronews fjallar um málið.

Sprengingin varð við íbúðarhús á Stoletovsky-breiðgötunni þegar maðurinn gekk þar ásamt öðrum einstaklingi. FSB hefur staðfest að starfsmaður rússneska varnarmálaráðuneytisins hafi látist en hefur ekki opinberlega gefið upp nafn hans.

Fyrrverandi foringi í úkraínska sjóhernum

Rússneskir og úkraínskir miðlar greina frá því að hinn látni hafi verið Robert Shageev, fyrrverandi kafbátaforingi í úkraínska sjóhernum. Upplýsingarnar hafa þó ekki verið staðfestar opinberlega.

Shageev stýrði úkraínska kafbátnum Zaporizhzhia áður en hann gekk til liðs við Rússa þegar þeir innlimuðu Krímskaga árið 2014.

Samkvæmt sömu heimildum varð hann síðar aðstoðarforingi 4. kafbátadeildar Svartahafsflota Rússlands og tók að lokum við stjórn kafbátsins Stary Oskol.

Kafbáturinn getur skotið Kalibr-stýriflaugum en Rússar hafa notað slíkar flaugar í árásum á borgir og innviði í Úkraínu. Úkraínsk stjórnvöld hafa ákært Shageev fyrir landráð.

Kona handtekin vegna árásarinnar

FSB segist hafa handtekið rússneska konu, fædda árið 1994, vegna sprengingarinnar. Stofnunin sakar hana um að hafa framkvæmt árásina samkvæmt fyrirmælum úkraínsku leyniþjónustunnar.

Árásin bætist í röð sprengjuárása og launmorða á rússneska herforingja og einstaklinga sem hafa starfað með rússneskum stjórnvöldum frá upphafi stríðsins. Slíkar árásir hafa bæði verið gerðar á hernumdum svæðum Úkraínu og innan Rússlands.

Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig opinberlega um sprenginguna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila