Staða Grænlands og alþjóðlegt öryggisástand kallar á skýra stefnu Íslands

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason þingmann og ritara Sjálfstæðisflokksins í Síðdegisútvarpinu um utanríkis- og öryggismál og stöðu Grænlands í breyttu alþjóðlegu samhengi. Í umræðunni fjallaði Vilhjálmur um vaxandi alþjóðlega spennu, stöðu Íslands innan NATO og þá þróun sem hann sagði eiga sér stað í umræðu um framtíð Grænlands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Alþjóðlegt öryggisástand í örum breytingum

Vilhjálmur sagði alþjóðlegt öryggisumhverfi hafa harðnað á skömmum tíma. Víða væru átök og yfirlýsingar þjóðarleiðtoga sem minntu á valdbeitingu fyrri tíma. Í slíkum aðstæðum skipti máli að Ísland héldi yfirvegaðri stefnu og forðaðist skyndilegar ákvarðanir sem gætu grafið undan stöðu landsins.

Hann sagði Ísland vera í sterkri stöðu sem aðili að NATO og með varnarsamning við Bandaríkin. Sú staða veitti skýran ramma um varnamál og tryggði öryggi landsins, ólíkt stöðu Grænlands.

Grænland í brennidepli stórvelda

Í viðtalinu sagði Vilhjálmur umræðuna um Grænland endurspegla aukinn áhuga stórvelda á norðurslóðum. Óljóst væri hvort áherslan snerist fyrst og fremst um varnarmál eða aðgang að auðlindum og viðskiptalegum hagsmunum. Sú óvissa gerði stöðuna flókna og kallaði á aukið samráð milli þeirra ríkja sem hefðu hagsmuna að gæta.

Hann taldi mikilvægt að Danmörk og Grænland ættu opið samtal við Bandaríkin um framtíðarskipan varnarmála og samskipta, byggt á gagnkvæmum skilningi fremur en þrýstingi.

Sjálfsákvörðunarréttur Grænlendinga

Vilhjálmur lagði áherslu á að Grænlendingar ættu sjálfir að ráða framtíð sinni. Ef vilji væri til fullveldis yrði það að gerast í gegnum lýðræðisleg ferli. Slík þróun krefðist þó vandaðs undirbúnings, meðal annars varðandi stjórnsýslu, efnahag og öryggismál.

Ísland getur gengt mikilvægu hlutverki í samstarfi við Grænland

Vilhjálmur sagði Ísland geta gegnt mikilvægu hlutverki í samstarfi við Grænland, meðal annars á sviði þjónustu, flutninga og heilbrigðismála. Slíkt samstarf gæti styrkt tengsl landanna og skapað gagnkvæman ávinning án þess að grafa undan sjálfstæði Grænlendinga.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila