Stærstu ríki ESB ala á á stríðsótta að halda til að verja völdin

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing í síðdegisútvarpinu, um vaxandi stríðsæsing í Evrópu, uppgang stjórnarandstöðuflokka í Þýskalandi og Frakklandi og umræðu um að stríðsástand geti haft áhrif á kosningar. Arnþrúður sagði forystumenn stærstu ríkja Evrópusambandsins standa illa í skoðanakönnunum og taldi stríðsótta notaðan til að styrkja stöðu sitjandi valdhafa og sambandið sjálft. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Stríðsæsingur eykst þegar fylgið minnkar

Arnþrúður benti á að Evrópusambandið eiga við mikla erfiðleika að stríða og nefndi meðal annars skuldasöfnun. Forystumenn stærstu ríkjanna stæðu illa í skoðanakönnunum og á sama tíma væri reynt að magna upp stríðsæsing með fréttum um dróna. Guðmundur tók undir þetta og bætti við að þegar eitthvað slæmt gerðist í Vestur-Evrópu væri ábyrgðinni iðulega beint að Rússum.

Arnþrúður ræddi sérstaklega stjórnmálaþróunina í Þýskalandi. Alice Weidel og AfD hefðu sótt fram í skoðanakönnunum á sama tíma og fylgi Friedrichs Merz hefði hrunið. Svipaða þróun mætti sjá í Frakklandi hjá Marine Le Pen.

Fram kom að kosningar fram væru undan í Saxlandi-Anhalt 6. september þar sem AfD væri spáð 40 til 50% fylgi. Áður hefði verið undirbúið að banna flokkinn og koma í veg fyrir þátttöku hans í kosningum en sú fyrirætlun hefði komist til almennrar vitundar.

Kosningafundur Merz hefði síðan verið illa sóttur og Kristilegir demókratar haldið áfram að falla í skoðanakönnunum.

Drónar við Leipzig orðnir hernaðarógn mánuði síðar

Á sama tíma bærustt fréttir um dróna við flugvöllinn í Leipzig. Drónarnir hefðu sést þar 4. ágúst en mánuði síðar hefði atburðinum verið lýst sem alvarlegri hernaðarógn við Þýskaland, NATO og Evrópusambandið. Þýskir forystumenn og hermenn hefðu komið fram í sjónvarpi og rætt hættuna.

Arnþrúður vakti athygli á að tímasetningin í málinu væri sérstaka athyglisverð. Merz væri að tapa fylgi og kosningar nálguðust í Saxlandi-Anhalt. Víða mætti sjá umræður um hvort hægt væri að blása kosningar í Þýskalandi af vegna stríðsástands og láta Merz sitja áfram. Sambærilegar hugmyndir hefðu komið fram í Frakklandi til að koma í veg fyrir að Marine Le Pen yrði forseti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila