Stærstu ríki ESB ala á stríðsótta til að halda völdum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um stjórnmálaþróunina í Evrópu og vaxandi umræðu um ógn frá Rússlandi. Guðmundur sagði stærstu ríki Evrópusambandsins þurfa á stríðsótta að halda til að bjarga sitjandi valdhöfum og sambandinu sjálfu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

AfD sækir fram og Merz tapar fylgi í Þýskalandi

Arnþrúður vakti athygli á því að Alice Weidel og AfD hefðu sótt fram í skoðanakönnunum í Þýskalandi á sama tíma og fylgi Friedrichs Merz hefði hrunið. Hún sagði sömu þróun sjást í Frakklandi hjá Marine Le Pen sem væri talin líklegur sigurvegari í forsetakosningum í Frakklandi á næsta ári.

Fram kom í þættinum að Merz hafi ætlað að halda kosningafund og ráðast harkalega á Weidel vegna kosninga í Saxlandi-Anhalt 7. september þar sem AfD væri spáð 40 til 50% fylgi. Áður hefði verið undirbúið að banna flokkinn og koma í veg fyrir þátttöku hans í kosningum en málið hefði komist til almennrar vitundar.

Hann sagði nánast engan hafa mætt á fund Merz og Kristilegir demókratar héldu áfram að falla í skoðanakönnunum.

Drónar við Leipzig sagðir hernaðarógn mánuði síðar

Guðmundur sagði frétt síðan, hafa birst um dróna sem sáust við flugvöllinn í Leipzig 4. ágúst. Mánuði síðar hefði atburðinum verið lýst sem alvarlegri hernaðarógn við Þýskaland, NATO og Evrópusambandið.

Hann sagði það hafa komist í tísku í Evrópulöndum að finna dróna og kenna Rússum um. Guðmundur kallaði þann málflutning áróður og sagði tímasetninguna vekja athygli þegar Merz væri að tapa fylgi og kosningar nálguðust í Saxlandi-Anhalt.

Arnþrúður benti á að hún hefði séð umræður um hvort hægt væri að blása kosningar í Þýskalandi af vegna stríðsástands og láta Merz sitja áfram. Sömu hugmyndir hafa komið fram í Frakklandi til að koma í veg fyrir að Marine Le Pen yrði forseti.

Stríðsóttinn geti bjargað sitjandi valdhöfum

Guðmundur sagði stærstu ríki Evrópusambandsins þurfa á stríðsótta að halda til að bjarga sitjandi valdhöfum og sambandinu sjálfu.

Óábyrgt væri að ögra Rússlandi vegna kjarnorkuvopnaeignar ríkisins. Ísland gæti því orðið fyrir óbætanlegu tjóni á örfáum mínútum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila