
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sætir vaxandi gagnrýni vegna meðferðar breskra yfirvalda á málum sem tengjast svokölluðum nauðgunar- og grooming-gengjum á þeim tíma sem hann gegndi embætti forstjóra bresku saksóknaraþjónustunnar, CPS, á árunum 2008 til 2013.
Málið hefur komist á ný í brennidepil eftir birtingu nýrrar rannsóknarskýrslu þar fram kemur að allt að 250 þúsund stúlkur og ungar konur hafi orðið fórnarlömb skipulagðs kynferðisofbeldis í Bretlandi á undanförnum áratugum.
Þúsundir mála hafi fengið væg viðbrögð
Samkvæmt upplýsingum sem raktar eru í rannsókninni fengu meira en 13 þúsund einstaklingar sem grunaðir voru um kynferðisbrot gegn börnum eða nauðganir aðeins viðvaranir eða aðra vægari afgreiðslu á því tímabili sem Starmer stýrði CPS. Sérstaklega hefur verið bent á notkun svokallaðra Child Abduction Warning Notices, þar sem grunuðum einstaklingum voru send formleg viðvörunarbréf í stað þess að sakamál væru höfðuð. Þúsundir slíkra tilkynninga voru gefnar út á landsvísu.
Grooming-gengi sögð hafa starfað víða um Bretland
Í rannsókninni er rakið að skipulögð nauðgunargengi hafi starfað í að minnsta kosti 149 sveitarfélögum víðs vegar um Bretland. Fórnarlömbin voru oft ungar stúlkur úr viðkvæmum félagslegum aðstæðum sem voru lokkaðar með gjöfum, áfengi eða fíkniefnum áður en þær voru beittar kynferðisofbeldi, ofbeldi og mansali.
Meirihluti dæmdra gerenda í hópbrotamálum hafi verið af pakistönskum múslimskum uppruna. Höfundar rannsóknarinnar telja að ótti við ásakanir um kynþáttafordóma hafi í mörgum tilvikum haft áhrif á viðbrögð stofnana og tafið rannsóknir.
Stofnanir sakaðar um að hafa brugðist
Rannsóknin gagnrýnir lögreglu, sveitarfélög, félagsþjónustu, skólakerfi, heilbrigðiskerfi og stjórnmálamenn fyrir að hafa brugðist fórnarlömbum. Þá hafi fjölmargar tilkynningar hafi verið hunsaðar og að fórnarlömb hafi í sumum tilvikum verið afgreidd sem vandræðaunglingar fremur en börn sem þurftu vernd.
Vitnisburðir sem lagðir voru fram lýsa skipulagðri misnotkun sem hafi í mörgum tilfellum staðið yfir árum saman án þess að gripið væri til fullnægjandi aðgerða.
Jimmy Savile einnig nefndur í umræðunni
Í tengslum við gagnrýnina hefur einnig verið rifjað upp að CPS ákvað árið 2009 að höfða ekki mál gegn sjónvarpsmanninum Jimmy Savile þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. Síðar kom í ljós að Savile hafði misnotað hundruð fórnarlamba á áratuga tímabili. Málið hefur verið nefnt sem dæmi um það hvernig breskar stofnanir brugðust við meðferð alvarlegra kynferðisbrotamála á þessum árum.
Krafist frekari rannsókna
Niðurstöðurnar hafa aukið þrýsting á bresk stjórnvöld um frekari rannsóknir á umfangi brotanna og ábyrgð þeirra stofnana sem komu að málunum. Umræðan hefur jafnframt beinst að því hvort ákvarðanir sem teknar voru innan breska réttarkerfisins á árunum fyrir 2013 hafi átt þátt í því að gerendur gátu haldið starfsemi sinni áfram árum saman áður en þeir voru loks sóttir til saka.
