
Stephen Kuhn, stofnandi samtakanna Take America Back, segir í nýju myndbandi að úkraínskir embættismenn og fjölskyldur þeirra hafi bókað kaup á ofursnekkjum næstu 4 árin fyrir hundruð milljóna dollara á sama tíma og vestræn ríki fjármagni stríðsrekstur Úkraínu.
Pantanir næstu 4 árin
Kuhn segist nýverið hafa rætt við framleiðanda ofursnekkja sem hafi upplýst hann um að pantanir frá Úkraínu fylli nú biðlista fyrirtækisins langt fram í tímann. „Hundruð milljóna dollara, ofursnekkjur, allt frá einu landi. Á sama tíma eru skattgreiðendur í Kanada, Bretlandi, Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu að fjármagna þetta,“ sagði Kuhn.
Skattfé renni til valdastéttarinnar
Hann sagði skattfé almennings á Vesturlöndum renna til úkraínskra auðmanna og embættismanna á meðan almenningur í Úkraínu væri neyddur til að berjast á víglínunni.
„Þeir eru að draga fólk af götunum til að senda það á fremstu víglínu, herkveða það í herinn og fólk er að svipta sig lífi til að forðast stríðið. Á meðan eru embættismennirnir að kaupa ofursnekkjur,“ sagði hann.
Stærsta peningaþvættisaðgerð nútímasögunnar
Kuhn sagði þetta vera „stærstu peningaþvættisaðgerð nútímasögunnar“ og bætti við að fjölmiðlar og mörg vestræn ríki bæru ábyrgð á dauðsföllum á vígvellinum.
Hann sagði jafnframt að Vladimír Pútín hefði vissulega ráðist inn í Úkraínu en hélt því fram að innrásin hefði komið í kjölfar ákalla frá fólki í austurhluta Úkraínu sem hefði verið drepið af úkraínskum „nasistasveitum“.
Almenningur hlusti á fólk á vettvangi
Að lokum hvatti Kuhn fólk til að hlusta frekar á fólk „á vettvangi“, fjölskyldur, framleiðendur og byggingaraðila en meginstraumsfjölmiðla.
