
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Arnar Þór Jónsson, formann Lýðræðisflokksins, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara, í þættinum Heimsmálin, á Útvarpi Sögu í dag, um stjórnskipulegu átökin í Póllandi og ágreining landsins við Evrópusambandið. Arnar Þór varaði við því að deilan um stjórnlagadómstól Póllands gæti þróast í borgarastyrjöld ef átökin milli ríkisstjórnarinnar og forseta landsins mögnuðust. Hann sagði hugsanlegt að hluti pólska hersins og lögreglunnar væri hliðhollur forsetanum og ástandið gæti því orðið afar viðkvæmt. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Óttast að her og lögregla skiptist í andstæðar fylkingar
Arnar Þór sagði stjórnskipulegu átökin í Póllandi vera komin á það alvarlegt stig að ekki væri hægt að útiloka borgarastyrjöld. Hann vísaði til átakanna um stjórnlagadómstól landsins og þeirrar stöðu sem hefði skapast milli ríkisstjórnar Donalds Tusk og forseta Póllands.
Arnar Þór sagði að ríkisstjórnin hefði beitt lögregluvaldi í tengslum við aðgerðir við dómstólinn en forsetinn, sem var á ferðalagi, hefði brugðist við með því að mæta óvænt á vettvang. Reynt hefði verið að koma i veg fyrir að forsetinn hefði komist inn í dómshúsið. Arnar Þór sagði jafnframt hafa komið fram upplýsingar um breytingar og hreinsanir innan pólska hersins og lögreglunnar.
Hætta á vopnuðum átökum
Hann taldi hugsanlegt að svo stór hluti öryggissveitanna væri hliðhollur forsetanum að átök milli stofnana ríkisins gætu orðið að vopnuðum átökum. Pétur vakti einnig athygli á hættunni á að alvarlegar innanlandsdeilur þróuðust með þeim hætti.
Arnar Þór sagðist vonast til að ekki kæmi til blóðsúthellinga en taldi stöðuna afar viðkvæma, sérstaklega þegar ágreiningur um lögmæti ákvarðana væri farinn að snúast um beitingu lögregluvalds.
Upplýsingar um þýska lögreglubíla vekja spurningar
Arnar Þór greindi einnig frá vísbendingum um að þýskar lögreglubifreiðar hefðu verið á ferð til Póllands þegar átökin við stjórnlagadómstólinn stóðu yfir.
Hann tók skýrt fram að ekki hefði verið staðfest hvort ferðir bifreiðanna tengdust atburðunum. Verið væri að kanna hvað hefði legið að baki þeim.
Ef í ljós kæmi að þýsk yfirvöld eða stofnanir Evrópusambandsins hefðu komið að aðgerðunum gæti það að hans mati haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Hann vísaði til sögulegrar reynslu Pólverja af afskiptum erlendra ríkja, ekki síst Þýskalands og sagði slíka íhlutun geta vakið hörð viðbrögð. Óstaðfestar upplýsingar um ferðir lögreglubifreiðanna gæfu þó ekki tilefni til að fullyrða að erlend stjórnvöld hefðu tekið þátt í aðgerðunum.
Átök um skipan dómara eiga rætur að rekja til ársins 2015
Arnar Þór rakti deiluna um stjórnlagadómstól Póllands aftur til ársins 2015 þegar stjórnmálafylking Donalds Tusk var að láta af völdum.
Þá hefðu þingmenn frá fylkingu Donalds Tusk, ákveðið að velja nýja dómara við stjórnlagadómstólinn áður en skipunartími þeirra sem fyrir sátu var runninn út. Arnar Þór sagði tilganginn hafa verið að tryggja að nýir dómarar hefðu þær pólitísku áherslur sem fráfarandi stjórnvöld vildu sjá. Dómstólar hefðu þannig orðið pólitískir.
Þetta hefði markað upphaf langvarandi átaka um hver hefði vald til að skipa dómara og hvaða sjónarmið réðu vali þeirra.
Hann tók jafnframt fram að stjórnmálaflokkurinn Lög og réttlæti, PiS, hefði að hans mati síðar beitt sambærilegum aðferðum. Hann væri því ekki að verja framgöngu andstæðinga Tusks heldur benda á hvernig báðar fylkingar hefðu átt þátt í að gera stjórnlagadómstólinn að vettvangi pólitískra átaka.
Þróunin hefði grafið undan trausti á sjálfstæði dómsvaldsins og gert úrlausn ágreiningsins enn erfiðari.
Deilan snýst einnig um forgang pólskrar stjórnarskrár
Að baki átökunum liggur að sögn Arnars Þórs grundvallarágreiningur um hvort stjórnarskrá Póllands eða lög Evrópusambandsins eigi að hafa síðasta orðið þegar reglur rekast á.
Hann sagði pólska stjórnlagadómstólinn hafa lagt áherslu á að stjórnarskrá landsins væri æðsta réttarheimildin, en stofnanir Evrópusambandsins vildu tryggja forgang Evrópusambandsréttar.
Pólverjar hafa ástæðu til að verja fullveldi sitt
Arnar Þór tengdi þessa afstöðu Pólverja við sögu þjóðarinnar. Póllandi hefði verið skipt milli Þýskalands og Sovétríkjanna í upphafi síðari heimsstyrjaldarinnar og eftir stríð hefði landið verið undir yfirráðum kommúnistastjórnarinnar í Moskvu um áratugaskeið.
Þessi reynsla skýrði hvers vegna fullveldi, sjálfstæð löggjöf og yfirráð yfir eigin gjaldmiðli skiptu Pólverja svo miklu máli.
Hann nefndi einnig ágreining við Evrópusambandið um innflytjenda- og flóttamannamál þar sem pólsk stjórnvöld og stofnanir hefðu á ýmsum tímum lagst gegn stefnu ESB. Þannig væri staðan í dag þar sem forseti Póllands væri alfarið á móti því að samþykkja innflutningspakka ESB sem lögð er mikil áhersla á.
Ágreiningurinn geti haft áhrif langt út fyrir Pólland
Arnar Þór varaði við því að átökin gætu haft víðtækar afleiðingar fyrir Evrópusambandið ef þau þróuðust áfram.
Hann sagði mörg aðildarríki glíma við sömu grundvallarspurningu um mörk valdheimilda Evrópusambandsins og rétt þjóðríkja til að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Þar nefndi hann meðal annars dóma þýska stjórnlagadómstólsins, þar sem fjallað hefði verið um stöðu stjórnarskrár Þýskalands gagnvart reglum Evrópusambandsins.
Pólland gæti því orðið vettvangur átaka sem hefðu áhrif á samskipti annarra aðildarríkja við stofnanir ESB, sérstaklega ef stjórnskipulegi ágreiningurinn leiddi til frekari valdbeitingar.
Lögmætisreglan gildir
Hann lagði áherslu á að lögmætisreglan yrði að gilda óháð því hvaða stjórnmálaöfl færu með völd. Allar ákvarðanir stjórnvalda og beiting ríkisvalds yrðu að byggjast á skýrum lagaheimildum en ekki almennum tilvísunum til stjórnskipulegrar nauðsynjar.
Að hans mati væri hættan sú að pólitískur ágreiningur, um skipan dómara og æðstu réttarheimildir landsins, breyttist í átök um sjálft ríkisvaldið. Það gæti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir Pólland og Evrópu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
