Stjórnvöld Schengen-ríkja hafa breytt vegabréfsáritunum í gróðavél

Stjórnvöld í Schengen-ríkjum hafa afhent einkafyrirtækinu VFS Global nánast einokunarstöðu í afgreiðslu vegabréfsáritana til Evrópu þar sem umsækjendur eru látnir greiða háar aukagreiðslur fyrir þjónustu sem oft er kynnt sem nauðsynleg. Þetta kemur fram í umfangsmikilli rannsókn Lighthouse Reports og fjölda alþjóðlegra fjölmiðla þar sem farið var yfir innri skjöl Evrópusambandsins, kvartanir umsækjenda og frásagnir núverandi og fyrrverandi starfsmanna fyrirtækisins.

Greiddu hundruð evra í aukagjöld

Samkvæmt rannsókninni þurfa umsækjendur víða að greiða aukalega fyrir þjónustu eins og SMS-tilkynningar, skjalaskönnun, „skjalastaðfestingar“, hraðafgreiðslu og sérstakar biðstofur. Dæmi eru nefnd um 2,50 evrur fyrir geymslu bakpoka, 3,50 evrur fyrir SMS-tilkynningu, 150 evrur fyrir skjalaskönnun og allt að 220 evrur fyrir „skjalastaðfestingu“. Þá býður fyrirtækið einnig upp á svokallaða heimavitjun þar sem starfsfólk kemur heim til umsækjenda til að taka lífkennagögn og skjöl gegn greiðslum sem geta numið allt að 3.500 evrum.

Starfsmenn sagðir hafa þrýst á fólk að kaupa þjónustu

Fyrrverandi og núverandi starfsmenn segja fyrirtækið hafa byggt upp kerfi þar sem starfsfólk sé undir miklum þrýstingi að selja aukapakka og viðbótarþjónustu. Sumir starfsmenn sögðu að þjónusta hefði jafnvel verið sett á reikninga án samþykkis viðskiptavina.

71 árs gömul kona á Indlandi sagði að henni hefði verið sagt að hún þyrfti annað hvort að greiða fyrir „premium“-þjónustu eða bóka nýjan tíma eftir að hún mætti of seint vegna mikillar rigningar og umferðarteppu á leið í umsóknarviðtal fyrir Belgíuáritun.

Schengen-ríki skráðu alvarleg brot

Innri eftirlitsskýrslur frá Schengen-ríkjum og Evrópusambandinu lýsa einnig fjölmörgum brotum hjá fyrirtækinu. Þar eru nefnd 21 tilvik þar sem fyrirtækið hafi ekki farið rétt með persónuupplýsingar samkvæmt GDPR-reglugerð Evrópusambandsins.

Lúxemborg gagnrýndi meðal annars að lífkennagögn umsækjenda hefðu verið flutt á ódulkóðuðum geisladiskum. Noregur og Svíþjóð gagnrýndu einnig slæma meðferð persónuupplýsinga og skort á þekkingu starfsfólks á persónuverndarlögum.

Segja fyrirtækið orðið of stórt til að refsa því

Þrátt fyrir ítrekaða gagnrýni hefur VFS Global haldið áfram að sinna vegabréfsáritunum fyrir nær öll ESB-ríki. Innri skjöl sýna að mörg Schengen-ríki telja sig orðin háð fyrirtækinu þar sem sendiráð hafi ekki lengur bolmagn til að sinna umsóknum sjálf.

Í skýrslu frá Lúxemborg segir að ráðandi staða VFS á mörkuðum eins og Indlandi geri stjórnvöldum erfitt fyrir að tryggja þá þjónustu sem sendiráð þurfi að fá.

ESB hyggst nú rannsaka kerfið

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir nú að hafin verði heildarrannsókn á útvistun vegabréfsáritana með það að markmiði að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu. VFS Global hafnar ásökununum og segir fyrirtækið fylgja ströngum reglum, starfa undir stöðugu eftirliti stjórnvalda og upplýsa umsækjendur skýrt um að aukapakkar séu valfrjálsir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila